Hönnun, útgáfa og prentun á skriftarbók fyrir fullorðna
To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.
Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.
Því það er aldrei of seint að tileinka sér fallega rithönd
Það er gaman að geta státað af fallegri rithönd.
Kynslóðir liðinna 30 ára hafa í örfáum tilfellum fengið tækifæri til að læra lykkjuskrift (e. cursive) og viljum við hjá Reykjavík Lettering bjóða áhugasömum að tileinka sér hana í einföldum æfingum á bók.
Bókin er unnin að fyrirmynd forskriftarbóka, þar sem nemandinn æfir stafina, fyrst eftir stuðningslínum, en síðar hjálparlaust. Hver hástafur verður sýndur í 3 útgáfum, svo hver og einn getur valið þann sem þeim líkar best við.
Í bókinni verður einnig að finna góð ráð við pennabeitingu og yfirlit yfir helstu gerðir blekpenna.
Bókinni verður fylgt eftir með námskeiðum þar sem áhugasömum býðst að þjálfa rithöndina undir handleiðslu kennara.
Ingi Vífill er þrítugur nemi í grafískri hönnun. Hann hefur að baki fjölda ára í kennslu listgreina og markaðsstarfi. Grafísk hönnun, og þar sérstaklega leturhönnun, er honum afar hugleikin en hann hefur kennt skrautskriftarnámskeið undir merkjum Reykjavík Lettering síðastliðin misseri í frumkvöðlarýminu The Space á Hólmaslóð.
Sjálfur lærði hann að skrifa lykkjuskrift þegar hann gekk í grunnskóla í Danmörku sem drengur. Frá þeim degi hefur honum fylgt mikill áhugi á letrum og leturgerðum, en hann hefur verið ötull talsmaður aukinnar skriftarkennslu í grunnskólum og vill því með verkefninu Skriftarbók fyrir fullorðna öllum áhugasömum tækifæri á að bæta handskriftina með aðgengilegum og skemmtilegum æfingum í verkefnabók.
Engrar reynslu er krafist - aðeins viljans til að læra eitthvað nýtt.
Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464