Að túlka hina mögnuðu Gísla sögu Súrssonar með töfrum myndasögunnar.

Ein vinsælasta Íslendingasagan er án nokkurs efa Gísla saga Súrssonar. Um hana hefur verið gerð vinsæl kvikmynd þar sem Arnar Jónsson fór á kostum í hlutverki Gísla. Einnig gerði Kómedíuleikhúsið vinsælan einleik sem er ein mest sýnda leiksýning landsins og vann til fjölda verðlauna á erlendri grundu. Nú loksins kemur út myndasaga byggð á Gísla sögu Súrssonar. Svo stórt er verkefnið að myndasagan mun koma út í fjórum bindum. Hér kynnum við til sögunnar og bjóðum ykkur að fjárfesta í fyrsta bindi Gísla myndasögu Súrssonar er nefnist Úr stíði í frið. Höfundar verksins eru báðir búandi listamenn á Vestfjörðum. Textahöfundurinn, Elfar Logi Hannesson, býr meira að segja á söguslóðum sögunnar og er sá er lék einleikinn um Gísla Súrsson hér um árið. Myndasmiðurinn, Ómar Smári Kristinsson, býr í þar næsta firði og teiknar þar í sínu Garðaríki Gísla sögu sem og vinsælu bæjarkortin og Fagra ferðamannakortið auk þess að vera höfundur hinna vel gerðu Hjólabóka.
Sumar sögur eldast betur en aðrar, jafnvel svo vel að þær eru lesnar í mörg hundruð ár og ganga áfram leskynslóð af leskynslóð. Ein þessara sagna er án efa Gísla saga Súrssonar sem lesin hefur verið í mörg árhundruð enda ein vinsælasta og mest lesna Íslendingasagan. Afhverju er Gísla saga svona vinsæl? Svarið er einfalt því Gísla saga hefur allt sem góð saga þarf að hafa. Fyrst skal nefna aðalpersónur sögunnar sem eru allt í senn sterkar, heillandi og sérstæðar. Þannig fanga þær lesandann strax og eru ljóslifandi. Sagan sjálf er svo einsog hin albesta spennusaga. Hún hefur allt sem til þarf: ástir, örlög og allt þar á milli. Það er mikilvægt að segja hverja sögu á sem fjölbreyttastan hátt. Það hefur einmitt verið gjört með Gísla sögu. Sagan hefur bæði verið kvikmynduð og um hana gerður vinsæll einleikur. Nú loksins er komið að Gísla myndasögu Súrssonar. Höfundar og aðstandendur bókarinnar eru allt mikið áhugafólk um Íslendingasögurnar og þá ekki síst í viðleitni til þess að túlka sögurnar í eigin list einsog þetta bókverk sýnir.
Gísla myndasaga Súrssonar verður gefin út í fjórum bindum. Fyrsta bindið og það sem leitað er hér fjármögnunar við heitir Úr stríði í frið.
Bókin verður gefin út samtímis bæði á íslensku og þýsku.




Nú falla öll vötn til Dýrafjarðar
Gísla saga er smekkfull af fleygum setningum. Orðatiltækjum sem hafa fest sig sessi í voru máli. Sú þekktasta er án efa Nú falla vötn öll til Dýrafjarðar. En hér eru fleiri fleygar setningar úr Gísla sögu:
"Eigi munu þeir allir samþykkir hið þriðja sumar er þar eru nú í þeim flokki."
Gestur Oddleifsson á þingi um að Haukdælir verði nú ekki allir svona góðir vinir þegar til lengdar dregur.
"Vörumst vér að eigi verði hann sannspár; enda sé ég gott ráð til þessa að vér bindum vort vinfengi með meiri fastmælum en áður og sverjumst í fóstbræðalag fjórir."
Gísli Súrsson í góðum hópi í búð Haukdæla á þingi þegar Gestur skýtur á þá varðandi að vinskapurinn muni eigi endast.
"Skal eg eigi binda mér vanda við þann mann er eigi vill við Véstein, mág minn."
Gísli Súrsson þegar Þorgímur kippir að sér hendinni í fóstbræðralaginu
"Oft stendur illt af kvennhjali."
Auður við Ásgerði eftir að sú síðarnefnda viðurkennir að hafa verið að eiga við Véstein.
"Því fylgdu engir mannlestir."
Auður við Ásgerði þegar hún skýtur að henni að hún hafi verið að deita Þorgrím áður en hún byrjaði með Gísla.
"Mæla verður einhver skapanna málum og það mun fram koma sem auðið verður."
Gísli við Auði eftir að hún sagði honum frá atburðinum í dyngju þeirra Ásgerðar.
"Saman er bræðra eign best að líta og að sjá."
Gísli við Þorkel bróður sinn þegar hinn síðarnefndi vill að þeir skipti fé sínu því hann hefur ákveðið að flytja á næsta bæ.
"Ég hef vond klæði og hryggir mig ekki þó ég slíti þeim eigi gerr."
Ingjaldur við Börk er hann vildi eigi ljóstra upp um vin sinn Gísla.
"Skaltu það muna, vesæll maður, meðan þú lifir að kona hefur barið þig."
Auður við Eyjólf gráa er hún hafði veitti honum vænan kinnhest með sjóðnum er hann bauð henni til að segja til Gísla.



Karolina Fund ehf © 2026 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Bjargargata 1, 102 Reykjavík, Iceland