Marsibil G. Kristjánsdóttir

Eigandi Kómedíuleikhússins.

  • Fjöllistakona

Ég er fædd, uppalin á Þingeyri við Dýrafjörð. Ég er sjálfstætt starfandi listamaður og bý og starfa í paradísinni fyrir vestan. Ég hefur haldið fjölda myndlistarsýninga bæði hér heima og erlendis. Meðal sýningarstað hér heima má nefna Edinborgarhúsið, Vegamót á Bíldudal, Flókalundi og á Café Mílanó í Reykjavík. Verk mín eru fjölbreyttar pennateikningar, málverk, grafík og fleira. Ég er annar eigandi Kómedíuleikhúsins vestfirska. Ég hef hannað leikmyndir, búninga, brúður og grímur við fjölda sýninga Kómedíuleikhússins allt frá upphafi, og einnig leikstýrt nokkrum sýningum, nú síðast Listamaðurinn með barnshjartað.

Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Powered by Karolina