Fyrra bindið kom út 2007 og hafa margir verið að spyrja um framhaldið af þessari sérstöku ferðasögu. Nú er komið að því, handritið er loksins skrifað og nú þarf að prófarkalesa, hanna og prenta. Það kostar peninga, því óska ég eftir ykkar aðstoð svo þetta geti orðið að veruleika.
... read more

FINISHED

This project is now finished.

€3,501

raised of €3,500 goal

0

days to go

89

Backers

100% FUNDED
No rewards exist or campaign is not public. Log in to add or edit rewards.
Get this! All gone!

Pledge € {{ reward.amount }} {{ reward.amount * 150 }} ISK


{{ reward.title }}

{{ reward.description }}

Limited ({{ stockLeft }} left of {{ reward.stock }} ) Gone (0 left of {{ reward.stock }} )
{{ reward.stock_reserved }} backer {{ reward.stock_reserved }} backers
Get this!

Pledge without a reward

Team

Ásgeir Hvítaskáld

Creator
Rithöfundur og kvikmyndaleikstjóri.

Plan

To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.

Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.

Á flótta undan vindinum

100%
  • Handrit
  • Prófarkalestur
  • Hönnun kápu
  • Umbrot
  • Prentun
  • Dreifing
  • Kynning
  • Markaðssetning
  • Senda verðlaun til þeirra sem styrktu
  • Útgáfuteiti

Further Information

Á flótta undan vindinum; er lífsreynsluskáldsaga um ungan mann sem fer í ferðlag því honum finnst að hann þurfi að skoða heiminn áður en alvara lífsins tekur við.
Í fyrra bindinu lenti hann í rifrildi við uppáhalds kærustuna nr. 3 og hoppaði um borð í seglskútu og sigldi til Noregs. Um tíma ráfaði um Norsku skógana svo endaði hann í Kaupmannahöfn.
„Nú var ég á einhverju undarlegu ferðalagi þar sem örlögin teymdu mig áfram. Ég upplifði ævintýrin eitt af öðru og kynntist fólki með mismunandi sjónarmið. Mér gafst kostur á að taka þátt í hlutum sem hefði verið útilokað á Íslandi. Minn sjóndeildarhringur var að víkka.
Mér var nokkuð sama þó það væri ekki ég sem réði för. Þetta gerðist bara, stig af stigi. Forvitnin og fróðleiksfýsnin teymdi mig áfram. Stundum fannst mér eins og einhver héldi í höndina á mér og togaði mig áfram. Það var verið að leiða mig inn í veröldina og sýna mér lífið á bak við fortjaldið.“

Ferðalagið heldur áfram, hann fer í einstaka hjólaferð þvert yfir Danmörku, fer til Skagen til að skoða Skagenmálarana, því myndir þeirra hafði hann dáðst að í æsku. Hann tekur þátt í kvikmyndagerð. Fer til Woodstock í Ameríku, þar sem fræga tónlistarhátíðin var haldin og blómahreifingin hófst.
Hann upplifir kvikmyndahátíð í Cannes, hittir betlara í París, fer til Cinecittá í Róm og sér hið fræga ítalska Hollywood, þar sem Bleiki Pardusin var tekin upp. Hann hittir frægan kvikmyndaleikstjóra í NewYork og leikur í dönskum kvikmyndum.
En allan tímann er hann hugsa um kærustuna sem hann skildi eftir. Hvað verður um hana?
Að lokum fer til hann til Katmandú í Nepal til að horfast í augu við Búdda. Þar líkur ferðalaginu.

Hér er einn kafli úr bókinni sem sýnishorn.

Að leika í Erninum

Aftur var ég í Kaupmannahöfn. Mér var farið að leiðast að vera útlendingur í Danmörku. Það var þreytandi til lengdar. Mest vegna þess að maður náði aldrei að tala hreimlausa dönsku. Það heyrðist alltaf. Ég gat skrifað dönskuna, en framburðurinn var erfiður. Sum kokhljóðin var nánast útilokað að temja sér.
Um þessar mundir var verið að sýna danska sjónvarpsseríu sem hét „Örninn“. En þessi sería var geysi vinsæl á öllum Norðurlöndunum og hafði fengið grammý-verðlaun og allt. Nú var verið að framleiða fleiri þætti.
Seint á sunnudagskvöldi var hringt í mig og spurt hvort ég væri til í að leika smáhlutverk í þessari sjónvarpsseríu. Þetta var ung stelpa hjá danska sjónvarpinu.
„Hvað á ég að leika?“ spurði ég og bjóst við að ég ætti að standa einhvers staðar út í horni og labba fyrir aftan aðalleikarann.
„Þú átt að leika Hans,“ sagði stelpan blátt áfram.
„Bíddu við, á ég kannski líka að segja eitthvað?“ spurði ég og var í uppnámi.
„Já, já. Þú ert með hlutverk.“
„Hlutverk?“ tautaði ég og missti um leið málið.
Það var eins og innyflin í mér herptust saman og hjartað fór að slá í hröðum valstakt. Þetta myndi aldrei ganga.
„En á ég ekki að koma í prufu fyrst?“
„Nei, nei. Leikstjórinn vill fá þig.“
Þetta var alveg absúrd. Ég átti að heita Hans og vera öryggisvörður á flugvelli. Ég hefði skilið það betur ef ég hefði átt að leika ölvaðan Íslending sem talaði bjagaða dönsku. Það passaði ekki fyrir öryggisvörð að brjóta á málinu. Þetta mundi aldrei virka. Ég varð mjög stressaður.
„Ég sendi þér handrit og leikarasamning,“ sagði stelpan og var sæt í röddinni.
Fyrst hálftíma seinna vaknaði ég til vitsmuna og mér varð ljóst að ég hafði gleymt að spyrja af hverju ÉG!
Ég svaf mjög órólega þessa nótt. En sannfærðist um að þetta væri allt byggt á misskilningi og næsta dag kæmi í ljós að þau hefðu ætlað að hringja í allt annan mann.
En strax klukkan 7 næsta morgun hringdi maður og spurði hvaða stærð af skóm ég notaði.
„Ég held 42,“ sagði ég ringlaður.
„Og skyrta?“
„Skyrta?“ ég var ekki alveg vaknaður.
„Hver er þín skyrtustærð?“
„Já! Medium í byrjun á Large.“
„Fínt, en buxur?“
„Það er 43 eða 44.“
„Ertu frá þér,.. það passar ekki.“
„Nú?“
„Á ég að koma og mæla þig.“
„Nei, nei. Ég finn númerið, það er hérna inn í buxunum,“ sagði ég og reyndi að finna hvar ég hefði kastað buxunum.
„Hringdu í mig þegar þú hefur það,“ sagði hann og var óðara horfinn úr símanum.
Ég æddi inn í eldhús og lagaði rótsterkt kaffi í von um að vakna upp af þessum hræðilega draumi. Það að ég átti að rembast við að tala villulausa dönsku, setti mig alveg út af laginu. Það var svo erfitt, útilokað! Ég titraði allur og kaffiduftið hrundi út um allt, fékk straum af hraðsuðukatlinum. Þá hringdi dyrasíminn.
Hlaupandi upptröppurnar kom póstmaður með pakka sem ég þurfti að kvitta fyrir. En ég fattaði það ekki fyrr en ég opnaði pakkann og sá handritið: Þetta var ísköld alvara!
Þáttur númer 14, stóð á forsíðunni. Skíthræddur fletti ég handritinu. Loks fann ég hvar merkt var við með gulu tússi. Það var hlutverkið mitt. Fyrsta setningin var:
„Jeg er desværre nød til at kropsvisitere dig.“
Og það voru fleiri setningar, í raun margar; heilar 2 síður. Sviti spratt fram á enninu og ég varð uppblásinn í maganum eins og ég hefði borðað blásýru.
Eitt vissi ég. Og það var að maður varð að kunna textann þegar maður mætti í upptökurnar. Svo ég byrjaði strax að æfa. Þrammaði fram og aftur um stofugólfið og kyrjaði textann yfir bókahillunum. En orðin pössuðu illa í munninn. Þetta kropsvisitere var ómögulegt að segja og líka desværre. Það voru þessi dönsku R sem alltaf voru vandamál, maður þurfti að skrolla eins og vangefinn; láta errið rúlla langt ofan í kokinu. Þar fyrir utan breyttist næsti sérhljóði sem kom á eftir. Það var ekki nokkur leið að læra þetta, líkist meira einhverjum koksjúkdómi. Þannig að ég byrjaði að stytta og þróa textann.
Ég mætti og upptökustaðurinn var flugstöðin á Hróarskelduflugvelli. Þegar ég hafði farið í búningabílinn og síðan í förðunarbílinn, þá labbaði ég inn í flugstöðina og fólk hélt að ég væri alvöru öryggisvörður. Ég sá hvar statistarnir sátu við borð og drukku kaffi. Við annaðborð sat Søren Spanning, sá sem ég átti að leika á móti. Strangur horfði hann á mig og var að mæla mig út. Það var eins og ég fengi hníf í bakið og mér varð pínandi mál að pissa. Hljóp niður á klósettið.
Þarna stóð ég við hlandskálina og fór með bænir mínar. Allt í einu hrundi hurðin upp og Jens Albinus kom inn. En það var aðalleikarinn sem lék lögregluforingjann Hallgrím sem átti að vera hálfur Íslendingur.
„Blessaður,“ sagði Jens á sæmilegri íslensku.
„Já, sæll.“
„Gaman að sjá þig.“
Hann mundi greinilega eftir mér. Í raun þá þekktumst við smá. Því áður en hann varð frægur þá kom hann oft á kvikmyndaverkstæðið og við höfðum verið á leiklistarnámskeiði fyrir kvikmyndaleikstjóra. Þar lék hann hlutverk í handriti eftir mig sem líka var í hrollvekjustíl. En kvikmyndaverkstæðið vildi aldrei styrkja þá mynd.
„Hvernig gengur?“ spurði Jens.
„Bara vel.“
„Ertu alltaf af skrifa?“
„Já, já.“
„Hvernig gekk með handritið?“
„Fékk aldrei styrk.“
„Já þetta er harður bransi. En þú mátt ekki gefast upp, sniðugt handrit. Hringdu í mig þegar þú færð styrk.“
Ég ætlaði að segja honum frá Woodstock en hann virtist vera á hraðferð. Svo það varð að bíða betri tíma.
Þegar ég kom aftur upp, var tæknifólk á hlaupum með alls konar græjur og verið var að setja upp ljós. Allt í einu sá ég leikstjórann. Hann þekkti ég! Þetta var Martin Schmidt sjálfur, vinur minn. Nú skildi ég allt saman. Því við Martin hittumst oft á fundum hjá danska kvikmyndaleikstjórafélaginu. Og við höfðum svo oft talað um að við yrðum að standa saman. Þetta var greiði! Hann var að gera mér greiða! Æ, æ! Nú varð ég vissulega að standa mig.
Hann kom og spjallaði við mig, mjög almennilegur. En hann var þekktur fyrir að gera blóðugar spennumyndir.
Við æfðum senuna án orða; hvernig Spanning kom inn, hvar ég átti að standa og hvenær ég átti að labba í veg fyrir hann. Ég áttiað telja upp á 7, svo labba af stað. En senan fjallaði um það að Hallgrímur og hans menn voru að lauma míkrófóni í farsímann hjá Spanning, á meðan ég færði hann inn í herbergi til að leita á honum; sem sagt kropsvisitere. En Spanning lék hættulegan vopnasala.
Spanning fór strax fram á breytingar á sínum texta. Og Martin samþykkti það, því Søren Spanning er virtur leikari. En þegar ég ætlaði að fá mínar breytingar, og ég þurfti virkilega á þeim að halda, þá fann ég að ég var ekki eins háttmetinn.
„Þarf ég endilega að segja orðið kropsvisitere?“ spurði ég Martin og gaf í skyn að orðið skapaði tungumálavandamál.
„Þú ferð með hann inn í herbergið og við sjáum ekkert hvað þar gerist. Nei. Það er ekki hægt að sleppa því,“ sagði Martin.
„En það liggur milli línanna.“
„Nei. Það gengur ekki.“
„En má ég sleppa desværre?“
„Við verðum að treysta handritinu,“ sagði Martin og hafði ekki áhuga á mínum vandamálum.
Þarna stóð ég aleinn og lítill. Um 50 manns horfðu á, ýmist sá fólk um ljós eða míkrófóna. Fjórir menn stóðu í kringum kvikmyndatökuvélina.
„Upptaka,“ var kallað og allt fór í gang.
Søren Spanningtæmdi vasa sína og setti farsímann á færibandið, gekk svo í gegnum röntgenhliðið. Ég stoppaði hann. Hann var hávaxinn og axlabreiður. En allt í einu stóð ég augliti til auglitisvið hættulegan vopnasala; auga fyrir auga; tönn fyrir tönn. Hann horfði ógnandi á mig.
„Jeg,.. jeg,..“
Mér brá svo í brún að ég gleymdi öllu því sem ég átti að segja. Allt sem ég hafði lært utanbókar var horfið. Tölvan var tóm.
„Stopp,“ kallaði upptökustjórinn. „Tæknivandamál, smá bið.“
Þeir breyttu ljósunum og færðu tökuvélina.
„Maður verður að kunna textann sinn,“ sagði Søren Spanning og horfði ásakandi á mig.
„Fyrirgefðu!“ sagði ég og var algjörlega miður mín.
Hann sá ástandið og dró mig afsíðis.
„Segðu það,..“ sagði hann og stóð aftur svona ógnandi fyrir framan mig.
„Jeg er desværre nød til at kropsvisitere dig.“
„Aftur,“ sagði hann og við endurtókum senuna nokkrum sinnum.
Þetta bjargaði mér algjörlega. Það var stór munur að segja eitthvað við bókahillu en vopnasala.
Svo var þetta tekið upp og það gekk mun betur. En Spanning vildi fá að breyta endanum á senunni. Og átti ég að bæta inn:
„Fortsat goddag min herre.“
Og þar náði ég að leika smá; komst í persónu eins og maður segir. Og Spanning fór á kostum, varð ofsa pirraður út í mig, því vopnasalan hafði gengið illa þennan dag og kallaði hátt yfir allt:
„Idiot!“
Þetta var tekið upp aftur og aftur, minnst 12 sinnum. Og þá fór ég nú bara að stytta textann minn; klippti burtu desværre og engin tók eftir því. Fyrir rest sagði ég textann nákvæmlega eins og ég var búinn að þróa hann og lét helling liggja á milli línanna.
Þegar upptökunum var lokið þakkaði ég Søren Spanning fyrir að hafa hjálpað mér. Hann var hinn almennilegasti, en talaði ennþá niður til mín. Ég var eins og frelsaður úr brennandi helvíti, þegar ég ók burt.
Löngu seinna sá ég svo þennan þátt númer 14, þá var búið að klippa mig út að mestu, líka aukasenuna hans Spanning. Ekki nóg með það, heldur var búið að dubba yfir röddina mína. Mér var svo sem sama, því nú vissi ég að éghafði engan metnað í því að verða leikari. En ég tók þó eftir að Daninn sem talaði yfir mig, sagði nákvæmlega það sem ég hafði þróað og stytt. Hann hökti líka á Kropsvisitere.

{{ userName(backer) }}

{{ backer.short_description }}

FINISHED

This project is now finished.

€3,501

raised of €3,500 goal

0

days to go

89

Backers

100% FUNDED
No rewards exist or campaign is not public. Log in to add or edit rewards.
Get this! All gone!

Pledge € {{ reward.amount }} {{ reward.amount * 150 }} ISK


{{ reward.title }}

{{ reward.description }}

Limited ({{ stockLeft }} left of {{ reward.stock }} ) Gone (0 left of {{ reward.stock }} )
{{ reward.stock_reserved }} backer {{ reward.stock_reserved }} backers
Get this!

Pledge without a reward

Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464