Sagan sem aldrei var sögð
To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.
Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.
Árið 1942 fékk Ytri-Akraneshreppur kaupstaðarréttindi og hét eftir það Akraneskaupstaður. Hálfri öld síðar ákváðu nokkrir ofurhugar að þessum tímamótum bæri að fagna með stórtónleikum. Akranesbær var að mestu þekktur fyrir knattspyrnuhetjur sínar og á 50 ára afmæli kaupstaðarins hafði ÍA einmitt tryggt sér sinn 13. Íslandsmeistaratitil. Glæsilegt! En verður þó að teljast hversdagslegt í samanburði við merkilegasta menningarviðburð Íslandssögunnar. Eða … réttara sagt viðburðinn sem hefði getað orðið merkilegasti menningarviðburður Íslands.
Helgina 25. og 26. september komu tvær af goðsögnum rokksögunnar og spiluðu í Íþróttahúsinu á Vesturgötu á Akranesi; Jethro Tull og Black Sabbath. Ævintýrið kallaðist Skagarokk. Tónleikarnir gengu vel og margir tónleikagestir töluðu um einstaka upplifun. Fljótlega rann þó upp fyrir tónleikahöldurum að þeir hefðu líklega hlaupið á sig. Vel hafði selst á Jethro Tull en sárafáir miðar á Black Sabbath. Og einhver sat í súpunni.
Sagan á bak við Skagarokkið er merkileg. Hún er bæði skemmtileg og dramatísk og hefur aldrei verið sögð opinberlega. Nú er í bígerð heimildamynd um þessa metnaðarfullu tónleika. Myndin mun fjalla um aðdragandann, undirbúninginn, ofurhugana sem hrintu þessu í framkvæmd, tónleikana sjálfa og eftirmála. Spennandi heildarmynd af Skagarokki ´92.
www.skagarokk.is
Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464