Tinna og Tóta spara fyrir heilbrigðiskerfið
Tinna og Tóta fæddust í Apríl 2012 á Prikinu. Þær hófu göngu sína á youtube nokkrum dögum síðar við ágætis undirtektir Íslenskra þjóðfélagsþegna. Á vormánuðum 2014 gengu þær til liðs við Bravó og Stórveldið og gerðu 8 þætti með þeim. Að því loknu gerðu þær “pælot” með Stórveldinu, því þeim líkaði sjónvarps-lífið vel og vildu meira. Sjónvarps-stjórnunar fólkið í landinu var ekki tilbúið til að taka áhættuna sem því fylgir að setja nafn sitt við heilsu-byltingu svo Tinna og Tóta sátu úti í kuldanum um hríð.
En þá var líkt og þær fengju hugljómun “allt feita fólkið er nátturlega ennþá á youtube!” öskraði Tinna og Tóta svaraði: “ó!”
Það hefur aldrei verið neitt leyndarmál að Anna og Bylgja, mæður þeirra T og T hafa ekki verið að græða neina peninga á þeim stöllum og er það ekki tilgangurinn með þessari söfnun heldur. Þeir peningar sem safnast verða notaðir í að borga fyrir eftirfarandi: Spreytan, neglur og augnhár. Síðan þarf tökumann og hljóðmann og hugsanlega/kannski/vonandi ekki að leigja einhverjar græjur. Allur afgangur fer á Tinnu og Tótu reikning og verður geymdur til þess að hægt sé að gera áframhaldandi fræðslu efni í komandi framtíð.
Við stefnum á að gera 4 þætti til að byrja með.
Stærsta“WHAT-ið” er svo hér: Nýju þættirnir verða allir á ensku. Vegna þess að ef Björk getur það, þá getum við það!
Leiðréttingarpeningar vel þegnir.
Hér að neðan má sjá fyrsta þátt þeirra vinkvenna.
Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464