Bylgja Babýlons

Manneskja með tilfinningar

Bylgja Babýlons er 27 ára gömul kona. Hún er með diplómagráðu í leiklist og á kött.

Hún starfar að hluta til á þjónustumiðstöð fyrir aldraða, pimpar út sketsaþættina um Tinnu og Tótu, sem hún gerir með Önnu veenkonu sinni ásamt því sem hún er að gera tilraun til að selja sjónvarpsþáttaseríuna "í baði með Bylgju"

Bylgja (er sjálf að skrifa þetta, en byrjaði að tala um sjálfa sig í þriðju persónu og ætlar að standa með því) hefur verið að fikta við uppistandið og hefur komið fram nokkrum sinnum á tilrauna uppistöndum á ellefunni, þar sem hún var valin "Bjartasta vonin 2014" og fékk verðlauna pening og allt!!

Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Powered by Karolina