Með hjartanu!

Gestateljarinn
Í lok maí hætti gestateljarinn í Raggagarði óvænt að virka þegar slökkt var á 2G- og 3G-farsímanetinu.
Eini kosturinn er að kaupa nýjan 4G-teljara. Gestateljarinn hefur verið í notkun frá árinu 2019 og er mikilvægt tæki fyrir uppbyggingu og rekstur garðsins. Hann sýnir okkur hversu margir heimsækja garðinn, hvenær álagið er mest og hefur meðal annars verið notaður við ákvarðanir um stærð bílastæðis og skipulag svæðisins. Við erum afar þakklát fyrir þann stuðning sem þegar hefur borist. Súðavíkurhreppur styrkir kaupin um 150.000 kr. og bekkjarsystkin Ragga okkar heitins styrkir verkefnið um 100.000 kr. Nú vantar aðeins lokahnykkinn!
Hvert framlag skiptir máli – stórt sem smátt.
Takk fyrir stuðninginn!
Um garðinn:
Raggagarður er fjölskyldugarður í Súðavík á Vestfjörðum sem er ætlaður fólki á öllum aldri. Þar er að finna fjölbreytt leiksvæði, útivistaraðstöðu, gönguleiðir, grillaðstöðu og notaleg samkomusvæði þar sem fjölskyldur og vinahópar geta notið samveru. Markmið garðsins er að efla útivist, hreyfingu og skapa ánægjulegan áfangastað fyrir bæði heimamenn og gesti.
Hugmyndin að Raggagarði kom frá Vilborgu Arnarsdóttur (sjá mynd að ofan) sem hafði lengi dreymt um að skapa fjölskyldugarð á norðanverðum Vestfjörðum. Eftir að sonur hennar, Ragnar Freyr Vestfjörð, lést í bílslysi árið 2001 ákvað hún að láta drauminn verða að veruleika og reisa garðinn í minningu hans.
Árið 2004 var félagið Raggagarður stofnað og fyrsta skóflustungan tekin. Garðurinn var opnaður árið 2005 og hefur síðan byggst upp í áföngum með mikilli sjálfboðavinnu og stuðningi heimamanna, fyrirtækja og velunnara víðs vegar að af landinu. Í dag er Raggagarður orðinn einn af vinsælustu fjölskylduáfangastöðum Vestfjarða og stendur sem tákn um samheldni, kærleika og mikilvægi þess að fjölskyldur geti átt góðar stundir saman.
Aðeins um okkur sem stöndum að söfnuninni:
Við, Aldís og Sigga, vorum góðar vinkonur Ragga og slitum barnsskónum saman í gömlu Súðavík. Þaðan eigum við ótal góðar minningar. Því viljum við leggja okkar af mörkum til Raggagarðs og hjálpa til við fjáröflun fyrir áframhaldandi uppbyggingu garðsins. Einnig viljum við heiðra minningu Ragga og styðja við verkefni sem hefur skapað svo mörgum fjölskyldum góðar stundir. Við vonum að Raggagarður haldi áfram að vaxa og dafna, svo komandi kynslóðir geti notið hans eins og við nutum þess að alast upp í einstöku samfélagi Súðavíkur.
Karolina Fund ehf © 2026 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Bjargargata 1, 102 Reykjavík, Iceland