Sigríður Fanndís Jónbjörnsdóttir

Ég er ein af bekkjasystkinum Ragga frá Súðavík og góð vinkona hans. Dóttir Ástu og Jobba.


Ég starfa við umönnun, er menntaður stuðningsfulltrúi og félagsliði og hef í starfi mínu lært hversu mikilvægt er að skapa umhverfi þar sem öllum líður vel og geta notið sín. Í haust hef ég nám í þroskaþjálfun við Háskóla Íslands.


Það er mér mikill heiður að fá að leggja mitt af mörkum við söfnunina fyrir nýjum teljara í Raggagarði, fjölskyldugarði Vestfjarða. Raggagarður er dýrmætur staður sem færir fjölskyldum gleði og góðar stundir, Ég vona að sem flestir sjái sér fært að styðja þetta góða málefni. Saman getum við gert gæfumun

Karolina Fund ehf © 2026 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Bjargargata 1, 102 Reykjavík, Iceland | Powered by Karolina