Uppvaxtarsaga manns sem greindist með einhverfu á fullorðinsaldri
... read more

Seeking funding

Fund this project

This project will only be funded if €10000 or more is pledged before 2026-05-17 00:00.

€2,760

raised of €10,000 goal

35

days to go

49

Backers

28% FUNDED
No rewards exist or campaign is not public. Log in to add or edit rewards.
Get this!

Pledge without a reward

Team

Sigurður Freyr Jónatansson

Creator
  • Einhverfur rithöfundur

Plan

To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.

Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.

Bláa sólin

0%
  • Handrit
  • Yfirlestur og ritstjórn
  • Fjármögnun útgáfunnar
  • Bókarkápa hönnuð
  • Prentun
  • Útgáfa og dreifing!

Further Information

Um bókina

Hugmyndin að bókinn kom þegar ég greindist einhverfur fyrir 4 árum. Þá setti ég ýmislegt sem hafði gerst á minni ævi í annað samhengi. Fyrst ætlaði ég að gera uppistand en svo áttaði ég mig á að ég hafði fullt af efni í heila bók.
Bláa sólin segir sögu mína fyrstu rúmlega 30 ár ævi minnar og er í þremur hlutum.
Fyrsti hlutinn segir frá skólagöngu minni frá leikskóla í háskóla.
Annar hlutinn fjallar um áhugamál mín í víðum skilningi og samkiptum við fólk í tengslum við þau.
Þriðji hlutinn segir frá starfsferli mínum, allt frá unglingavinnu og blaðburði og endar þegar ég hætti í Kaupþingi 33 ára gamall.

Um höfundinn

Ég er 56 ára Reykvíkingur sem greindist einhverfur 6. apríl 2022. Þá áttaði ég mig í raun fyrst á ástæðum þess að ég hafði alltaf upplifað mig eitthvað öðruvísi. Fyrst langaði mig að skrifa uppistand en fannst það ekki vera nógu fyndið og of mikið út fyrir þægindahringinn. Ég hins vegar áttaði mig á að ég gæti haft áhugaverða sögu að segja og byrjaði haustið 2022 að skrifa ævisögu mína sem ég hef unnið að með hléum.

Annars er bara "venjulegur" að öðru leyti, Ég er giftur og á tvö uppkominn börn og eitt barnabarn. Ég starfa sem tryggingastærðfræðingur hjá Seðlabankia Íslands..

Kafli úr bókinni

Leikskólinn - Grátlegt að 11 komi á eftir 40

Ég var einn af þeim krökkum sem var svo heppin á mínum á aldri að vera í leikskóla. Ég kalla það heppni en ég veit auðvitað ekki hvort það hefði breytt einhverju fyrir mig ef ég hefði ekki komist í leikskóla. Allavega komst ég að því þegar ég byrjaði í grunnskóla að þar var fullt af krökkum sem höfðu ekki verið með mér í leikskólanum.

Ég var í leikskólanum Álftaborg í Safamýri, fyrir ofan Framvöllinn. Þar byrjaði ég til dæmis að vera Framari, en við gátum séð einhverja flokka úr FRAM æfa á Framvellinum þar sem sátum í rólunum, rennibrautinni eða kastalanum, eða hvað öll þessi leikföng hétu. Ég mun tala töluvert meira bæði um FRAM og áhuga minn almennt á íþróttum síðar.

Annars á ég ýmsar minningar úr leikskólanum en sumar minningar eru byggja á því sem mér hefur verið sagt síðar. Mamma hefur til dæmis sagt mér að fyrsta árið í leikskólanum hafi ég ekki sagt orð en svo loksins þegar ég byrjaði að tala kunni ég allar bækurnar utanbókar og gat þulið þær upp. Ég hafði líka snemma gaman af tölum og var duglegur að sýna hversu duglegur ég væri að telja.

Eitt sem ég man vel sjálfur er að ég hafði miklar skoðanir á því á hvaða stólum ég gæti setið á þegar við sátum inni á deild í leikskólanum. Allar stólar voru annað hvort með rauðum eða gulum sessum og ég var svo ákveðinn í því að gulur væri stelpulitur og því var ég mjög ákveðinn í að sitja á rauðri sessu. Það er ekki ólíklegt að þessar tiktúrur mínar hafi farið eitthvað í taugarnar á fóstrunum, eins og þær voru kallaðar þá.

Önnur minning sem ég hefði ekki munað sjálfur tengist Eyrúnu sem var vinkona mín í leikskólanum. Frá 4 ára aldri átti ég heima á Háaleitisbraut 28 en þá fluttum við nálægt ömmu minni og stjúpafa sem bjuggu á Háaleitisbraut 24, eða í blokkinni fyrir neðan. Eyrún átti heima í næsta stigagangi við ömmu, eða á Háaleitisbraut 22. Þar sem mamma var útivinnandi kennari sótti amma mig oft í leikskólann. Stundum virðist ég hafa fengið að koma heim úr leikskólanum með mömmu Eyrúnar ef marka má þessa sögu.

Eitt sinn þegar mamma Eyrúnar sótti okkur í leikskólann byrjaði ég að telja upphátt. Þegar ég var kominn upp í 40 sagði Eyrún allt í einu 11. Það fipaði mig og ég fór að hágráta. Alltaf þegar mamma Eyrúnar hitti mömmu eða ömmu á förnum vegi eftir þetta rifjaði hún upp þessa sögu, jafnvel eftir að ég var orðinn löngu fullorðinn.

{{ userName(backer) }}

{{ backer.short_description }}

Seeking funding

Fund this project

This project will only be funded if €10000 or more is pledged before 2026-05-17 00:00.

€2,760

raised of €10,000 goal

35

days to go

49

Backers

28% FUNDED
No rewards exist or campaign is not public. Log in to add or edit rewards.
Get this!

Pledge without a reward

Karolina Fund ehf © 2026 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Bjargargata 1, 102 Reykjavík, Iceland