Ég er 56 ára Reykvíkingur sem greindist einhverfur 6. apríl 2022. Þá áttaði ég mig í raun fyrst á ástæðum þess að ég hafði alltaf upplifað mig eitthvað öðruvísi. Fyrst langaði mig að skrifa uppistand en fannst það ekki vera nógu fyndið og of mikið út fyrir þægindahringinn. Ég hins vegar áttaði mig á að ég gæti haft áhugaverða sögu að segja og byrjaði haustið 2022 að skrifa ævisögu mína sem ég hef unnið að með hléum.
Annars er bara "venjulegur" að öðru leyti, Ég er giftur og á tvö uppkominn börn og eitt barnabarn. Ég starfa sem tryggingastærðfræðingur hjá Seðlabankia Íslands..