Endurheimt kjörlendis í Vatnsmýri og lofthelginnar yfir Nesinu vestan Elliðaáa
To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.
Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.
Samtök um betri byggð kt: 540499-3069 - https://www.betribyggd.is hafa samþykkt að hefja málsókn gegn íslenska ríkinu fyrir ólögmæta landtöku í Vatnsmýri í Reykjavík á árinu 1946.

Þú getur verið þátttakandi í að stórefla þína borg með nýjum miðborgar kjarna sem mundi ná frá tjörninni í gamla miðbænum, í gegnum nýjan miðbæjarhluta og alla leið niður að Nauthólmsvík. Með því mundi einnig skapast hringtenging fyrir umferð um höfuðborgarsvæðið og kostur á nýrri austur/vestur stofnbraut.
Með því að styrkja þetta verkefni tekur þú þátt í að fjármagna þessa lögsókn gegn íslenska ríkinu til ná fram réttlæti sem íbúar eiga skilið.
Árið 1946 fundu afspyrnulélegir ráðamenn á Íslandi upp á því í fullkomnum aulaskap og vanþekkingu að snúa á hvolf algildum sannindum og mörg þúsunda ára reynslu mannkyns af borgarmótun. Þeir rændu besta mannvistar- og byggingarsvæði Reykvíkinga í Vatnsmýri, þar sem skyldi koma þétt og blönduð miðborgarbyggð og negldu þess í stað niður herflugvöll Breta.
Um leið sviftu þeir Reykvíkinga allri lofthelgi yfir Nesinu vestan Elliðaáa og rændu borgarbúa auk þess skipulagsvaldinu í skjóli og í skugga ótrúlegs dáðleysis kjörinna fulltrúa Reykvíkinga í borgarstjórn og á Alþingi. Allan lýðveldistímann og lengur hafa þessir kjörnu fulltrúar komið af landsbyggðarstýrðum framboðslistum landsmálaflokkanna og eru því vanhæfir og þjakaðir af þöggun og þrælsótta af völdum misvægis atkvæða.
Við viljum fá skorið úr um það fyrir dómstólum hvort rétt sé að halda byggingarsvæði í Vatnsmýrinni áfram fráteknu eða hvort það eigi að nýtast almenningi betur – til íbúðabyggðar, borgarþróunar og lífsgæða. Til þess þurfum við að fara í málaferli gegn íslenska ríkinu.
Slík mál eru kostnaðarsöm og krefjast sérfræðivinnu, lögfræðinga og skipulagsfræðinga. Þess vegna leitum við nú til almennings eftir stuðningi til að fjármagna undirbúning og rekstur málsins.
Með framlagi þínu hjálpar þú til við að tryggja að málið fái sanngjarna og faglega meðferð fyrir dómstólum.
Jafnvel lítið framlag frá þér skiptir máli. Ef margir leggja sitt af mörkum getum við sameiginlega tryggt að þetta mikilvæga mál komist fyrir dóm. Styðjum lýðræðislega umræðu um framtíð Vatnsmýrarinnar. „1000 manns leggja 5.000 kr. – og málið fer fyrir dóm.“
Þinn styrkur færi í:
- Undirbúning fyrir dómsmálið
- Kostnað við lögfræðiþjónustu
- Vinnu við sérfræðiskýrslur
Teymið í þessu verkefni er framkvæmdastjórn Samtaka um betri byggð:
Anna Ingólfsdóttir, prófessor
Gunnar H Gunnarsson, verkfræðingur
Örn Sigurðsson, arkitekt
Lömaður verkefnisins: Ragnar Aðalsteinsson hjá Lögfræðstofunni Réttur

SAMTÖK UM BETRI BYGGÐ ERU FRJÁLS OG ÓHÁÐ FAGSAMTÖK (NGO) Á SVIÐI SKIPULAGS BORGARINNAR.
Samtök um betri byggð eru óflokksháð samtök sem berjast fyrir mannúðlegu borgarskipulagi í þéttbýli, þar sem sjálfbærni er í fyrirrúmi og tekið er mið af manninum, menningu hans og afkomu.
Samtök um betri byggð vilja upplýsa almenning um samspil borgarskipulags og lífsgæða og vekja með áhuga á umhverfismálum í víðu samhengi.
Samtökin líta eingöngu til allra stærstu þátta borgarmyndarinnar, til þéttleika og annara gæða byggðar, til öryggis og almannavarna, hvar skuli koma búseta, stofnbrautir, athafnasvæði, miðborgir, flugvellir og hafnir.
Tilgangur samtakanna er að bera fram athugasemdir og ábendingar við áform, aðgerðir og aðgerðaleysi skipulagsyfirvalda og að gera tillögur að betra borgarskipulagi á aðal- og svæðisskipulags sviði Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðis HBS í þágu almannaheilla.
Ábendingar og tillögur samtakanna miða ávallt við algildar forsendur vestrænnar heimsspeki og alþjóðlegra mannréttindasáttmála. Að allir menn séu jafnir, að lýðræðislegur meirihlutavilji og almannaheill séu alltaf í fyrirrúmi og réttur minnihluta sé jafnan tryggður.

„Fáum úr því skorið: Hver á Vatnsmýrina?“
Vefsíða samtakanna: https://www.betribyggd.is
Með því að styrkja leggur þú grunn að uppbyggingu
Karolina Fund ehf © 2026 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Bjargargata 1, 102 Reykjavík, Iceland