Vefumsjón

Mitt félagsstarf í gegnum árin • Í stjórn ICF Iceland, félags markþjálfa á Íslandi • Formaður landsamtakanna Ferðafrelsi • Í stjórn Samtaka um betri byggð • Formaður Miðborgarsamtaka Reykjavíkur • Í stjórn Höfuðborgarsamtakanna • Í stjórn Miðbæjarfélags Reykjavíkur • Formaður íþróttafélagsins Fjölnis • Formaður Íbúasamtaka Grafarvogs • Félagsforingi skátafélagsins Vogabúa • Formaður skólanefndar Auðkúluhrepps
Hvernig finnst mér staðan í dag? - það þarf að bæta agaleysi í samfélaginu, staða Íslands í alþjóðlegum samanburði í menntun slæm og það er vöntun á trausti til stofnana sem stýra landinu.
Ég tel að ástæðan sé - vöntun á samstarfsvilja og samskiptahæfni hjá fólki, vöntun á samskiptalegum stuðningi í foreldraumhverfi og vöntun á samstarfi og samskiptahæfni í umhverfi skóla
Hvers vegna er þetta svona? Starfsfólk í fyrirtækjum sem upplifir að hafa áhrif á ákvarðanir og finnst það vera metið að verðleikum í starfi, afkastar meiru og er að skila meiri verðmætum. Fyrirtæki sem byggja á samráði og samvinnu starfsmanna og leggja áherslu á öfluga samskiptahæfni eru að skila betri afkomu samkvæmt staðfestum rannsóknum. Foreldrar sem læra samskiptalega aðferð í uppeldi eru að skila betri einstaklingum. Menntaumhverfi með góðan samstarfsgunn á milli skólayfirvalda, kennara, nemenda og foreldra mun styrkja stöðuna í alþjóðlegum samanburði.
Hugsjónin mín Mín hugsjón er að innleiða samstarfs- og samskiptalega hugmyndafræði hjá fyrirtækjum, stofnunum, félagasamtökum, skólumog heimilum sem skilar fólki meiri lífsánægju og um leið aukinni framlegð í samfélaginu. Þetta er vinn – vinn fyrir alla og því fleiri aðilar sem innleiða þetta, því meiru munu þessir aðilar skila til samfélagsins. Í grundvallaratriðum snýst þetta um:
Taktu þátt í því með mér að bæta samfélagið Með Gordon hef ég það að markmiði að bæta samfélagið með því að innleiða lýðræðislega samstarfslega hugmyndafræði inn í fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök, skóla og heimili og bæta þannig stöðu samfélagsins. Leggja þannig hægt og örugglega grunn að betri samkeppnisstöðu Íslands í alþjóðlegum samanburði. Þú getur aðstoðað mig við að bæta starfsumhverfi íslenskra fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka, heimili og skóla í framtíðinni, með því að taka þátt og koma þessari hugmyndafræði á framfæri.
Áratugarannsóknir staðfesta virknina í þessari leið Ég byggi mína hugmyndafræði á alþjóðlega umhverfinu Gordon Training International þar sem boðið er upp á námskeið, vinnustofur og innleiðingar sem efla og auka aðild starfsmanna að ákvörðunartöku innan fyrirtækja, stofnana, félagsamtaka og skóla og efla samskiptahæfni. Áratuga rannsóknir staðfesta þann árangur sem þessi hugmyndafræði skilar.
Markmiðin hjá mér eru stór:
1. Gera fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök, heimili og einstaklinga betri
2. Auka gæði í uppeldislegu umhverfi foreldra, barna og unglinga
3. Styrkja og efla skólaumhverfið og kennarana okkar
