Við viljum opna fyrsta innileikvöllinn í Vestmannaeyjum. Við höfum keypt leikgrind og unnið að verkefninu í marga mánuði. Nú þurfum við fjármagn til að tryggja húsnæði og koma verkefninu á næsta stig.
... read more

Seeking funding

Fund this project

This project will only be funded if €10000 or more is pledged before 2026-03-26 00:00.

€7,000

raised of €10,000 goal

5

days to go

98

Backers

70% FUNDED
No rewards exist or campaign is not public. Log in to add or edit rewards.
Get this!

Pledge without a reward

Team

María Rán

Creator
Ég heiti María, er 24 ára tveggja barna móðir og stunda nám í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri. Ég hef unnið markvisst að áætlanagerð og undirbúningi verkefnis sem miðar að sjálfbærri uppbyggingu. Nú er leitað stuðnings samfélagsins til að taka næstu skref.
  • Áætlanagerð og kostnaðargreining
  • Rekstrar- og fjárhagsgrunnur (viðskiptafræði)
  • Verkefnastjórnun
  • Undirbúningur styrkja og fjármögnunar

Plan

To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.

Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.

Innileikvöllur í Vestmannaeyjum

40%
  • Hugmyndavinna
  • Kaup á leikgrind
  • Leitarvinna að húsnæði + val á hentugum stað
  • Rekstraráætlanir og upphafsáætlanir
  • Styrkur frá Vestmannaeyjabæ
  • Fyrsta hönnun leikrýmis
  • Samningar um húsnæði
  • Endanleg hönnun og útfærsla leiksvæðis
  • Öryggis- og heilbrigðisvottanir
  • Undirbúningur opnunar
  • Tryggja upphafsfjármagnið til að festa húsnæði
  • Frágangur og uppsetning leikgrindar
  • Innkaup á öryggis- og burðarvirkjum
  • Lokabreytingar og uppsetning á rýminu
  • Opnun!

Further Information

Í Vestmannaeyjum er lítið af afþreyingu sem hentar börnum innandyra. Veðrið ræður oftar en ekki í hvaða leik og hreyfingu börn komast, og það skapar bæði áskoranir og takmarkanir fyrir fjölskyldur á eyjunni. Við höfum sjálf upplifað þetta og séð að mikil þörf er á öruggu, skemmtilegu og aðgengilegu rými fyrir börn – stað þar sem þau geta leikið sér óháð veðri.

———————————————

Við erum ungt par með mikinn áhuga á því að bæta umhverfið fyrir börn í Vestmannaeyjum. Við fluttum hingað fyrir nokkrum árum og fundum strax fyrir skortinum á inniafþreyingu. Í september ákváðum við að taka stóra skrefið:við keyptum leikgrindina úr Smáratívolí og höfum unnið markvisst að því að finna húsnæði, skipuleggja rekstur og móta leiksvæði. Markmiðið er að búa til stað sem börn elska og foreldrar geta treyst.

Við höfum lagt inn eigið fé, eiginn tíma og fengið styrk frá sjóðnum „Villtu hafa áhrif“ hjá Vestmannaeyjabæ – sem staðfestir að verkefnið hefur raunverulegt gildi fyrir samfélagið.

Söfnunin er lykilþáttur í að halda verkefninu áfram. Með því að styrkja okkur hjálparðu beint við að tryggja húsnæðið og hefja framkvæmdir sem gera opnunina mögulega. Þetta er fyrsta skrefið í að skapa öruggan og skemmtilegan innileikvöll fyrir börn í Vestmannaeyjum – og samfélagið leikur þar stórt hlutverk.

Karolina Fund virkar sem „allt eða ekkert“, sem þýðir að ef markinu er náð verður verkefnið að veruleika. Ef ekki, fer ekkert gjald í gegn.

{{ userName(backer) }}

{{ backer.short_description }}

Seeking funding

Fund this project

This project will only be funded if €10000 or more is pledged before 2026-03-26 00:00.

€7,000

raised of €10,000 goal

5

days to go

98

Backers

70% FUNDED
No rewards exist or campaign is not public. Log in to add or edit rewards.
Get this!

Pledge without a reward

Karolina Fund ehf © 2026 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Bjargargata 1, 102 Reykjavík, Iceland