Ferðasaga um jökla og landið.
To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.
Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.
Þessi bók fjallar um hestaferðir sem ég fór í á árunum 1986 til 1991, hringaði Langjökul, Hofsjökul, Vatnajökul og svo landið sjálft, Ísland. Fyrsta ferðin var farin með vinum frá Álftanesi, um Hofsjökul fór ég einn, kringum landið með tveimur félögum Þór Guðmundssyni og Vigfúsi Magnússyni og í Vatnajökuls ferðinni var ég að ljúka hring um jökulinn og var einn míns liðs.
Brot úr fyrsta degi Íslands ferðarinnar:
Þegar stutt var til ferðarinnar okkar benti Þór mér á að þar sem ég byrjaði túrinn minn úti á Álftanesi væri þetta ferð frá Álftanesi til Álftaness og ég þurfti að loka honum. Sjálfur ætlaði hann að hitta okkur Vigfús í Efra Roti undir Eyjafjöllum og ljúka sínum hring þar.
Þar sem ég hafði skipulagt viðbótarferð að þessari lokinni, hafði samþykkt að fara með mínu fólki um Grímsnes, Laugarvatn og nágrenni og færi að endingu þeirrar ferðar með klárana í beit í Kjarnholti í Hrunamannahreppi, þá hefði ég aldrei lokið hringnum.
Tækist mér því ekki að loka mínum hring um landið því leiðin frá Skógarhólum á Þingvöllum út á Álftanes væri ófarin.
Ég mætti því búast við að vera ekki talinn með þegar fjallað yrði og sagt væri frá þessari löngu ferð. Ég þekkti reyndar ekki stríðnina sem Vigfús bjó yfir, næg væri hún frá Þór einum.
Ég söðlaði því klár minn, tók annan með og reið á Þingvöll 26. júlí einn míns liðs frá Álftanesi. Ég fór í gegnum Hafnafjarðarbyggð, um Kópavog og Garðabæ enda auðvelt á þessum tíma, lítil byggð og nær engin umferð. Fór um Vatnsendaland og vestan við Elliðavatn og upp hjá Korpúlfsstöðum og þaðan um Reykjadal og Skammadal í Mosfellsdal. Reið fram á Póra í Laxnesi, en á Laxnesi hefur hann rekið hestaleigu lengst allra á landinu. Á þessum árum stóð hann fyrir þolreið, akkúrat sömu leið og ég ætlaði.
Hann rak upp stór augu þegar hann sá mig því keppni hans var yfirstaðin en hann eflaust haldið að ég ætlaði að taka þátt. Bauð mér í kaffi eins og alltaf og spurði hvurn djöfulinn ég væri að þvælast einn.
Ég sagðist vera að ljúka ferð.
“Hvaða ferð er það?” spurði Póri.
“Hringferð um landið “ upplýsti ég.
“Ertu búinn að ríða kringum landið? “spurði hann steinhissa.
“Nei, ég er á síðasta degi ferðarinnar” útskýrði ég.
“Nú ertu þá ekki að klára?” spurði Póri ofurlítið ringlaður.
“Ja, ég er á síðasta degi samkvæmt áætlun ”svaraði ég “en ferðin byrjar á morgun”
“Eftir áætlun? Hver gerði þessa áætlun?” spurði Póri
“Þór gerði hana að mestu” sagði ég, ”en hann benti mér á að ég yrði að taka þennann legg svo ferðin næði frá Álftanesi til Álftarness, þar sem ég mætti ekki vera að því að ríða heim frá Þingvöllum þegar ferðinni væri að ljúka.”



Önnur tilvitnun:
Þessu næst fór ég yfir Kreppuhrygg og blöstu nú við mér aurar Kreppu og Kverkár, en farið var að skyggja svo útsýnið var ekki víðfemt. Geta þetta verið hin verstu vötn og jafnvel enn meiri en Jökulsáin sjálf. Svo var einmitt þennan dag. Langt var liðið á daginn, sem verið hafði heitur, og mikill vöxtur í ánum. Áður hef ég komið að Kreppu, en aldrei slíkri sem nú.
Ég hafði ætlað mér að vera kominn í kofa í Grágæsadal, sem er þarna steinsnar austan árinnar, við Gæsavatn í dalnum. Ætlaði mér að gista þar næstu nótt. Þar átti ég von á tveimur Jökuldælingum, þeim bændunum Mannsa (Karl Sigurður Jakobsson) á Grund og Agnar Pálsson, fæddur á Aðalbóli, með fóður fyrir klárana. Ég var búinn að vera á ferð í 13 tíma en reið þó kampakátur út á Kreppuleirur. Fyrstu álarnir voru óttalegar sprænur, náðu hestum rétt í kvið. Ég var farinn að hlakka til að komast í svefnpokann.
Því miður voru þetta gyllivonir, því þegar ég kom að síðasta álnum í Kreppu og Kverká, en þær renna þarna saman, var vöxturinn slíkur að mér stóð ekki á sama. Er þetta vestan undir Fagradalsfjalli hinu Syðra og þar upp í brekkunni austan til sá ég mann að fylgjast með mér.
Karolina Fund ehf © 2026 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Bjargargata 1, 102 Reykjavík, Iceland