Söfnun fyrir prentun á mjög merkilegri bók um morðið í Naphorni og síðustu aftökuna á Austurlandi 1786.
To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.
Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.
Útgáfa á mjög merkilegri bók, um morð sem var framið á Austurlandi árið 1784 og hafði hörmulegar afleiðingar.
Áhrifamikið örlagadrama um þrjá drengi sem struku úr vistarböndum og áttu sér draum um frelsi á fjöllum en draumurinn snérist upp í svik og hryllilegt morð.
Þrír drengir lögðust út í helli í Naphorni á Austfjörðum árið 1784. Einn þeirra varð fárveikur eftir að hafa borðað úldinn hest, fyrst skáru þeir úr honum tunguna sem síðar endaði með morði. Það var þó bara byrjunin á hörmungunum. Aðalpersónan játaði á sig morðið en sagan fjallar einmitt um það af hverju hann gerði svo.
Þessi saga lýsir einnig tilfinningaríku ástarsambandi og sterkri föðurást.
Í kjölfarið var síðasta aftakan á Austurlandi framkvæmd, sem var ein hrottalegasta aftaka sem farið hefur fram á Íslandi, þegar 23 ára gamall, ólæs, fáfróður og einfaldur drengur var hálshöggvinn. Notuð var bitlaus exi svo höggva þurfti sjö sinnum áður en höfuðið fauk af búknum.
Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464