Gunnars Kvaran sellóleikari og Elísabet Waage hörpuleikari hafa spilað sem dúó um áratuga skeið. Þau hafa nú hljóðritað geisladisk með fjölbreyttri efnisskrá, meðal annars frumflytja þau nýtt verk eftir John Speight - Visions Fugitives.
... read more

FINISHED

This project is now finished.

€3,057

raised of €3,000 goal

0

days to go

67

Backers

102% FUNDED
No rewards exist or campaign is not public. Log in to add or edit rewards.
Get this!

Pledge without a reward

Plan

To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.

Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.

Visions Fugitives / Hverfandi sýnir

100%
  • Hljóðritun
  • Gerð masters
  • Útlitshönnun
  • Framleiðsla
  • Útgáfa!
  • Afhending

Further Information

Nýjasta verkið er Visions fugitives (Hverfandi sýnir) sem John Speight samdi fyrir Gunnar og Elísabetu. Gunnar lýsir efnisskránni með þessum orðum. „Það er einstaklega vel skrifað fyrir bæði hljóðfærin og hljóðfæraleikarana og spannar afar vítt svið sýna þrátt fyrir að vera aðeins um ellefu mínútna langt. Tónsmíðin hefur á stundum sterka hrynjandi en síðan taka syngjandi laglínur og draumkenndari sýnir yfir.

Lengsta verk disksins er eftir franska barokkmeistarann Couperin, fimm konsertþættir sem urðu til fyrir tilstuðlan hins þekkta franska sellóleikara Paul Bazelaire. Hann valdi kafla úr ýmsum verkum eftir Couperin og útsetti þá upprunalega fyrir selló og píanó. Þættir þessir eru að ýmsu leyti ólíkir en mynda mjög fallega heild sem náð hefur miklum vinsældum.

Aðrar tónsmíðar á diskinum eru Litanei og Serenade eftir Schubert en hafa má í huga að hljómur slaghörpu þess tíma minnir töluvert á hljóm hörpunnar. Einnig eru á diskinum Clair de lune eftir Fauré, Aria eftir Bach, auk fjörugs Elddans Watkins fyrir einleikshörpu. Ekki var nauðsynlegt að umrita neitt verkanna fyrir hörpuna. Meðleikurinn í Spænska dansinum eftir Granados er með svolítið gítarlegri áferð sem endurómar í plokki hörpunnar. Auk þess má heyra tvö íslensk lög, Sofnar lóa eftir Sigfús Einarsson og Nótt eftir Árna Thorsteinsson.“

{{ userName(backer) }}

{{ backer.short_description }}

FINISHED

This project is now finished.

€3,057

raised of €3,000 goal

0

days to go

67

Backers

102% FUNDED
No rewards exist or campaign is not public. Log in to add or edit rewards.
Get this!

Pledge without a reward

Karolina Fund ehf © 2026 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Bjargargata 1, 102 Reykjavík, Iceland