Útgáfa sögulegra hljóðrita með 50 bls. bók
To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.
Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.
Á þessu ári heldur Hafliði uppá 80 ára afmæli sitt. Við slík tímamót er gjarnan litið um öxl og lífshlaupið - ferlinni, sem í tilfelli tónlistarmanns er eitt og það sama, skoðaður í heild og með hæfilegri fjarlægð. Hafliði orðar það þannig sjálfur að „nú sé kominn tími til að gera hreint fyrir sínum dyrum hvað sellóleikinn varðar“. Við skulum gefa Hafliða sjálfum orðið.

„Þar sem við sitjum við kvöldverðarborðið í íbúðinni okkar í Edinborg fyrir mörgum árum síðan, segir annar af tveim yngri sonum okkar óvænt; „Ég hef oft séð þig leika á selló í Skosku Kammersveitinni pabbi, en ég hef aldrei heyrt þig sem einleikara á tónlekum, eru til einhverjar upptökur“?
Þetta varð til þess að ég fór að athuga hvað væri til. Í upptökusafni Ríkisútvarpsins fundust nokkrar upptökur sem ég taldi nothæfar. Þar fyrir utan fann ég í kassa heimavið, safn af segulbandsspólum og snældum frá einleikstónleikum í gegnum árin.
Engin af þessum upptökum var gerð sérstaklega með útgáfu á geisladisk í huga.
Það hefur sjaldan vakið áhuga minn að gefa út geisladisk með eigin sellóleik. Þá sjaldan sem slík hugmynd bærði á sér, var hún á „bak og burt“ eftir nokkra daga og kemur þar margt til.
Ég lít á þetta safn sem hér er gefið út á tveimur diskum, sem “hljómrænt skjalasafn” sem greinir frá tónlistarflutningi mínum sem sellóleikara eins og hann í rauninni var, með kostum sínum og göllum.
Nokkrar upptökur með kammertónlist eru til staðar, en mér leið alltaf best á opinberum tónleikum í flutningi á kammertónlist, og á því sviði lét ég töluvert að mér kveða. Lögð er áhersla á að gefa sem víðtækasta mynd af hvaða tónlist vakti áhuga minn, og kvað ég lék sem einleikari á árunum frá 1970 til 1985.
Þar sem ætlunin var að gefa aðeins út tvo diska og viss takmörk sett, er í sumum tilfellum um aðeins einn kafla að ræða úr stærri og veigameiri tónverkum. Tekin sem heild, kemur þetta safn tónlistar víða við.“
Í undirbúningi er tvöfaldur geisladiskur með bók uppá ca. 50 síður þar sem finna má hljóðrit frá Reykjavík og London þar sem Hafliði Hallgrímsson leikur á selló.
Með honum leika:
Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó
Manuela Wiesler, þverflauta
Robert Bottone, píanó
Philip Jenkins, píanó
Ólafur Vignir Albertsson, píanó
Halldór Haraldsson, píanó
Einar Jóhannesson, klarínetta
Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Guido Ajmone-Marsan
Karolina Fund ehf © 2025 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Bjargargata 1, 102 Reykjavík, Iceland