DVD útgáfa á heimildamyndinni Guðni á trukknum
Guðni er fæddur árið 1923, gerði út trukk með lyftibúnaði og loftpressu og sá um fleygun og sprengdi jarðveg á suðurnesjum um hálfrar aldar skeið. Að því loknu hefur hann gert upp á annað hundrað véla af mörgum gerðum, gert þær gangfærar að nýju. Vélarnar eru til sýnis í Byggðasafninu í Garðinum. Þá kom Guðni með trukkinn að fjölda verkefna í höfnum á suðurnesjum, tengt framkvæmdum við hafnarmannvirki eða við lagfæringu og tilfærslu báta. Þá var hann kvaddur til aðstoðar við lausn á fjölbreyttum verkefnum tengt viðgerðum og flutningi á margs konar búnaði. Gjarnan fór hann um vegi á Suðurnesjum í óverðum til aðstoðar áður en björgunarsveitir náðu núverandi styrk.
Um árabil glímdi hann við að ná málmum í fjörum úr skipum sem þar urðu til og útbjó sig með búnað til þess. Fór með trukkinn á fjöru allt út í Flasarhaus á Garðskaga og var ætíð kominn með búnað sinn að landi áður en flæddi. Hreinsun málma úr fjörum má flokka með umhverfisvernd. Guðni var vitavörður á Garðskaga og Hólmsbergi í 25 ár.
Nú er stefnt að því að gefa myndina út á DVD diski. Kostnaður við útgáfuna er um ein milljón króna með öllum réttindum: Tónlist, gömlu myndefni (ljósmyndum og kvikmyndum). Einstaklingar sem styrkja upphæð að 3000 krónur eða meira fá myndina á veglegum DVD diski.
Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464