Einhverfu Myndasaga
“Regnhlífarhugtak sem vísar til heilastarfsemi fólks sem er ekki álitin týpísk eða hefðbundin. Til dæmis: einhverfa, lesblinda, athyglisbrestur… “

Skynsegin Einhverfa er myndasaga sem fræðir um Einhverfu og inniheldur einnig mína eigin sögu um að fá greiningu og bárattu við að fá endurhæfingu til að vera partur af vinnumarkaðinum.
Lok bókarinar inniheldur gagnlegar upplýsingar líkt og bækur og myndbönd um einhverfu.
Skynsegin Einhverfa er búið að vera ástríðu verkefni fyrir mig síðan ég gerði fyrstu opnuna til að sýna á Marglita Mars árið 2024 og loks hef ég lokið við gerð myndasöguna fyrir lokaverkefni mitt við Myndlistarskóla Reykjavíkur 2026

það vantar sárlega meiri fræðsluefni um einhverfu á Íslandi,
einhverfa er mjög miskilin greining og einhverfa lítur ekki eins út hjá öllum en við glímum öll við skynjunar úrvinnslu vanda.
Umræðan er byrjuð að rúlla og ég vil bæta við minni rödd og deila upplýsingum um einhverfu og láta þá vita sem eru á rófinu að þeir eru ekki einir í sínum erfiðleikum.
Myndasöguformið gerir upplýsingar aðgengilegri.
Bókin er ætluð einhverfum, aðstendum þeirra og allra sem eru forvitnir að fræðast meira um einhverfu

Ég er Kris Halla Helga, 32 ára myndasöguhöfundur sem er nýútskrifaður úr diplóma Teikninámi við Myndlistarskóla Reykjavíkur, fædd og uppalin í Hafnarfirði.
Ég fékk einhverfu greiningu árið 2023 og loksins fékk ég svör við afhverju ég átti svo erfitt með skynjunarúrvinnslu og marga félagslega þætti sem samfélagið krefst af okkur
Ég ólst upp við að lesa myndasögur og hef mikla ástríðu fyrir miðlinum.
Ég er Meðlimur í Íslenska Myndasögu Samfélaginu
Nám:
*Ba(hons) Búningahönnun fyrir kvikmyndir frá the Arts University of Bournemouth, UK
*Diplóma Teikni nám við Myndlistarskóla Reykjavíkur
*Myndlistar og Tískubraut frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ
Ég er að safna fyrir prentun og dreifingu fyrir fyrstu 200 eintökum af bókinni, ef vel gengur stefni ég á að koma út fleiri eintökum og er voninin að geta síðan gefið hana út á ensku
Hugmyndavinna (lokið)
Hönnun (lokið)
Frumgerð (lokið)
Prentun (ólokið)
Dreifing (ólokið
Karolina Fund ehf © 2026 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Bjargargata 1, 102 Reykjavík, Iceland