Barnadjasshátíð fyrir börn frá Íslandi, Noregi og Færeyjum. Listrænn stjórnandi er Odd André Elveland frá Noregi, frumkvöðull í djasstónlistarkennslu barna. Hátíðin á að vera aðgengileg öllum börnum og þátttökugjaldi þess vegna haldið í lágmarki
... read more

In Progress

This project has been successfully funded and is now executing.

€2,245

raised of €2,100 goal

0

days to go

56

Backers

107% FUNDED
No rewards exist or campaign is not public. Log in to add or edit rewards.
Get this!

Pledge without a reward

Team

Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir

Creator
  • Sérfræðingur í skutli og reddingum í tengslum við tónlistarverkefni barna

Djasskrakkar úr Mosó

Djasshljómsveit úr Mosfellsbæ

Further Information

Barnadjasshátíð í Mosfellsbæ sumarið 2026

Dagana 18-21. júní verður hátíðin Barnadjass í Mosó haldin í fjórða sinn.
Flytjendurnir eru á aldrinum 8-16 ára og koma frá Íslandi, Noregi og Færeyjum. Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er Odd André Elveland en hann er norskur djasstónlistarmaður sem rekur tónlistarmiðstöðina Improbasen i Osló. Hann er frumkvöðull í tónlistarkennslu barna og hefur þróað aðferðir til að kenna ungum börnum að spila djass eftir eyranu og að spinna. Með Odd André kennir Haruna Koyamata sem einnig kennir við Improbasen tónlistarskólan. Odd André og Haruna hafa unnið með börnum víðsvegar um heiminn og haldið fjölda námskeiða fyrir börn og tónlistarkennara á Íslandi síðastliðin ár.

Hátíðin samanstendur af tveimur námskeiðum og fjölda tónleika. Samúel Jón Samúelsson stýrir fyrra námskeiðinu sem verður stórsveitarnámskeið fyrir lengra komna tónlistarnemendur. Odd André hefur yfirumsókn með seinna námskeiðinu sem mun fara fram sem kennsla í minni hópum. Íslenskir tónlistarkennarar munu sjá um kennslu á seinna námskeiðinu, Sólveig Morávek, Elvar Bragi Kristjónsson og Hildur Guðný Þórhallsdóttir.

Haldnir verða fimm tónleikar: 18. júní í Hlégarði kl 19:00, 19. júní kl 16:00 og 17:30 í Húsi máls og menningar (Reykjavík) og 21. júní kl 15:00 og 17:00 í Hlégarði

Yfir 70 börn hafa skráð sig á námskeiðið. Við viljum að hátíðin sé aðgengileg fyrir öll börn og þess vegna er ókeypis inn á alla tónleikana og kostnaði við þátttöku á námskeiði er haldið í lágmarki. Þar af leiðandi erum við háð styrkjum og í fyrsta skipti í ár hefur styrkjasöfnun gengið illa.

Ábyrgðamaður söfnunar: Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir, gudrunthuridur@gmail.com

Framkvæmdastjóri hátíðarinnar: Guðrún Rútsdóttir, gvudrun@gmail.com

Gestgjafar hátíðarinnar eru hljómsveitin Djasskrakkar úr Mosfellsbæ. Hana skipa 6 börn úr Mosfellsbæ á aldrinum 11 til 16 ára sem hafa spilað saman í verkefnum á Íslandi og í Noregi. Djasskrakka skipa Emil (píanó), Edda (klarinett og saxófónn), Rakel (trompet), Svandís (saxófónn), Helga Margrét (trommur) og Sigga Sól (kontrabassi). Djasskrakkar hafa tekið þátt í Kids in Jazz í Noregi sem er hluti af Oslo Jazz hátíðinni og Reykjavík Jazz Festival.

{{ userName(backer) }}

{{ backer.short_description }}

In Progress

This project has been successfully funded and is now executing.

€2,245

raised of €2,100 goal

0

days to go

56

Backers

107% FUNDED
No rewards exist or campaign is not public. Log in to add or edit rewards.
Get this!

Pledge without a reward

Karolina Fund ehf © 2026 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Bjargargata 1, 102 Reykjavík, Iceland