Heilnæm og nærandi afþreying fyrir íbúa og gesti
To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.
Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.
Gufuböð hafa um aldir verið notuð til að efla heilsu, vellíðan og félagslega samveru. Í dag má segja að þau séu vinsælli en nokkru sinni fyrr, enda veita þau bæði líkamlega og andlega endurnæringu og slökun frá áreiti hversdagsins. Með tilkomu fljótandi gufubaðsklefa sem staðsettur er á vatni og hannaður til að vera umhverfisvænn og sjálfbær er nú hægt að njóta þessara gæða í nánum tengslum við náttúruna, án þess að raska henni. Verkefnið okkar gengur út á það að setja fljótandi gufubaðsklefa á Ólafsfjarðarvatn fyrir neðan Brekkuland í Ólafsfirði.

Gufubaðsklefinn okkar verður að hámarki fyrir 12 persónur, staðsettur á flotbryggju, smíðaður úr timbri með stórum glugga svo hægt sé að njóta útsýnis yfir vatnið og fjöllin í kring. Þetta verður svokölluð "þurrgufa" þar sem gufan er framkölluð með því að skvetta vatni yfir steina sem hitaðir eru með rafmagnshitara. Flotbryggjan verður um það bil 1-2 metra frá landi og landgangur smíðaður úr timbri. Við leggum mikla áherslu á að raska náttúrunni sem allra minnst svo að gestir upplifi og njóti ósnortinnar náttúru í bland við hitann í gufunni og kuldann í vatninu.
Gufubaðsklefinn verður opinn og aðgengilegur öllum sem vilja. Mögulegt verður á einfaldan hátt að bóka pláss á almennum opnunartíma þar sem hver og einn nýtur hitans í gufubaðinu og kælingar í vatninu á eigin forsendum. Einnig verður í boði að bóka aðstöðuna fyrir hópa sem vilja vera útaf fyrir sig, hvort sem er á eigin vegum eða með leiðbeinanda (gusumeistara). Að lokum verða svo í boði "gusur" þar sem hægt er að skrá sig á þematengda gufubaðsupplifun undir handleiðslu gusumeistara sem leiðir gesti í gegnum ferðalag hita og kælingar. Mögnuð upplifun sem kemur á óvart!

Við lítum á þetta verkefni sem frábært tækifæri til að leyfa sem flestum að upplifa og njóta náttúrunnar og kyrrðarinnar sem er í sveitinni við Ólafsfjarðarvatn. Að sitja á fallegum degi á pallinum við gufubaðið, hlusta á fuglasönginn með tærnar í vatninu í algjörri núvitund.... Fullkomið augnablik sem gleymist seint.
Við settum þetta verkefni hingað inn því við þurfum á þér að halda svo það verði að veruleika. Hver og einn stuðningsaðili skiptir máli. Ekki bara hjálpar það til með kostnaðinn, heldur styrkir það okkur í þeirri trú að þið sjáið þetta líka sem tækifæri sem þið viljið og munið nýta ykkur í framtíðinni..... Að við séum á réttri leið
Ef allt gengur að óskum þá mun þessi fjármögnun/forsala standa undir um það bil helmingi af kostnaði við efniskaup, flutning og fleira sem þarf við uppsetningu gufubaðsins, fyrir utan vinnuframlag okkar, vina og fjölskyldu.
Karolina Fund ehf © 2026 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Bjargargata 1, 102 Reykjavík, Iceland