Guðrún Erlingsdóttir – Rúna, gefur út á vínil í fyrsta sinn. Það dugar ekkert minna en tvöföld LP plata fyrir lögin nítján sem Rúna hefur samið á síðustu fimmtán árum ásamt textum við þau. Fyrir þau sem ekki eiga plötuspilara er í boði að kaupa í plötuna stafrænt í forsölu.
... read more

Seeking funding

Fund this project

This project will only be funded if €2100 or more is pledged before 2026-05-04 00:00.

€554

raised of €2,100 goal

60

days to go

8

Backers

26% FUNDED
No rewards exist or campaign is not public. Log in to add or edit rewards.
Get this!

Pledge without a reward

Team

Guðrún Erlingsdóttir

Creator
  • Texta- og lagahöfundur

Plan

To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.

Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.

Sólarlag

12%
  • Lagasmíð
  • Upptökur
  • Artwork
  • Hljóðblöndun
  • Tónjöfnun
  • Hönnun umslags
  • Framleiðsla Vínylplötur 
  • Útgáfa og dreifing!

Further Information

Platan sem fengið hefur nafnið Sólarlag, er með mismunandi áherslur á hvorri plötu fyrir sig. Lögin eru fjölbreytt hvað varðar stíl og boðskap en öll spretta þau af lífinu sjálfu.

Á Sólalagi má finna rokk, havaí stemmingu, franska stemmingu, blues, valsa, tregablús, instrumental ofl.

Hér fyrir neðan má heyra hljóðbrot af nokkrum lögum sem enn eru í vinnslu

Platan er sannkallað fjölskylduverkefni. Hún er gefin út af Rúnu og Gylfa Sigurðssyni eiginmanni hennar. Málverk á plötuumslagi er eftir Bjarteyju, dóttur þeirra en hönnun er í höndum Þóris Helga Hallgrímssonar, tengdasonar Rúnu og Gylfa. Jóhanna Björk dóttir þeirra syngur með móður sinni lagið Maísól sem samið var um elsta barnabarnið.

Það myndi styrkja verkefnið mikið og hvetja höfundinn áfram, að fá góðan stuðning á Karolina fund

Tvö af lögum Rúnu hafa verið gefin út áður, Friður á jólanótt á Spotify og Drottinn ég tilbið þig á plötu Guggu Lísu, Komi ríki þitt.

Upptökur eru í fullum gangi í Stúdíó Paradís og gert er ráð fyrir að Sólarlag komi út í lok júní n.k.

Rúna hefur fengið til liðs við sig frábæra tónlistarmenn og söngvara en plöturnar eru teknar upp í Stúdíó Paradís í Sandgerði hjá feðgunum Jóhanni Ásmundssyni og Ásmundi Jóhannssyni.

Hljóðfæraleikarar:

Bassi: Jóhann Ásmundsson

Gítar: Sigurgeir Sigmundsson

Píanó: Arnór Vilbergsson

Trommur: Ásmundur Jóhannsson

Söngvarar: Áslaug Helga Hálfdánardóttir, Drífa Nadía Thoroddsen, Gugga Lísa, Guðrún Erlingsdóttir, Jóhanna Björk Gylfadóttir, Kolbrún Shalini Árnadóttir, Sísí Ástþórsdóttir og Tómas Guðmundsson auk Barnakórs Keflavíkurkirkju.
Bakraddir: Söngvarar ættaðir úr Vestmanneyjum og kórfélagar úr ýmsum kórum sem Rúna hefur sungið í.

{{ userName(backer) }}

{{ backer.short_description }}

Seeking funding

Fund this project

This project will only be funded if €2100 or more is pledged before 2026-05-04 00:00.

€554

raised of €2,100 goal

60

days to go

8

Backers

26% FUNDED
No rewards exist or campaign is not public. Log in to add or edit rewards.
Get this!

Pledge without a reward

Karolina Fund ehf © 2026 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Bjargargata 1, 102 Reykjavík, Iceland