Ný plata frá hljómsveitinn Saktmóðigur er í framleiðslu og verður tilbúin í byrjun nýs árs.
... read more

In Progress

This project has been successfully funded and is now executing.

€1,730

raised of €1,500 goal

0

days to go

38

Backers

115% FUNDED
No rewards exist or campaign is not public. Log in to add or edit rewards.
Get this!

Pledge without a reward

Further Information

Hæ.

Við höfum lokið upptökum á nýrri plötu og er hún í framleiðslu um þessar mundir. Stefnt er á að koma henni út í byrjun nýs árs. Ef þú kaupir hana hér í forsölu munum við senda þér eða koma henni til þín um leið og hún lendir....

Seljum sannleikann – ný plata frá Saktmóðigur

Ef þú vilt styðja heiðarleika, hávaða, íslenskt pönk, þá er þetta verkefnið fyrir þig.

Saktmóðigur snýr aftur með nýja plötu: Seljum sannleikann. Upptökustjóri plötunnar er Aðalbjörn Tryggvason og Jakob Veigar Sigurðsson hannaði umslag plötunnar.

Fyrir þá em ekki vita þá er Saktmóðigur íslensk hljómsveit. Hún var stofnuð 1991 og hefur starfandi óslitið síðan. Fyrsta útgáfa hljómsveitarinnar var kasettann Legill sem kom út haustið 1992. Í kjölfarið komu tvær 10 tommu vínyl EP plötur, Fegurðin, blómin og guðdómurinn árið 1993 og Byggir heimsveldi úr sníkjum árið 1996. Hljómsveitin hefur auk þess gefið út þrjá geisladiska. Ég á mér líf (1995), Plata (1998) og Guð hann myndi gráta (2011). Saktmóðigur hefur verið lýst svo af gagnrýnanda:

Suddapönk-hljómsveitin Saktmóðígur er eins og kleprar í rasshárum alls þess sem er hipp og kúl á Íslandi – að eilífu dæmd til að vera utangarðs og lafandi svitastokkin á jaðrinum. Pönkið er enn blóðhrátt og skröltir áfram eins og skrokkur í sláturhúsi. Karl Pétur söngvari er villimannslega æstur og spýtir frá sér ofbeldis- og klámfengnum sora, við bæði glatt strokkpönk og lúshægt mulningspönk.

Þriggja laga 7 tommu vínylplatan Demetra er dáin kom út árið 2013 og hafði að geyma lagið Kobbi V sem hjómsveitin gerði myndband við. Árið 2013 sendi sveitin svo frá sér afmælisbraginn Eistnaflugsdans í tilefni af tíundu Eistnaflugshátíðinni. ´

Árið 2018 kom svo út platan Lífið er lýgi.
Við höfum búið til plötuna. Nú þurfum við hjálp til að koma henni út.“
Þess vegna er sannleikurinn til sölu.

Að lokum – af hverju að taka þátt?

Ef þú vilt styðja heiðarleika, hávaða, íslenskt pönk, þá er þetta verkefnið fyrir þig.
Takk fyrir að hjálpa okkur að koma þessum hljóðlegu sannindum út í heiminn.

{{ userName(backer) }}

{{ backer.short_description }}

In Progress

This project has been successfully funded and is now executing.

€1,730

raised of €1,500 goal

0

days to go

38

Backers

115% FUNDED
No rewards exist or campaign is not public. Log in to add or edit rewards.
Get this!

Pledge without a reward

Karolina Fund ehf © 2026 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Bjargargata 1, 102 Reykjavík, Iceland