Ný hönnunarvara
Ég heiti Bryndís Sara og stend á bakvið ELVERUM.
Mitt helsta áhugamál er hönnun tengd fötum og fylgihlutum. Ég hef lengi verið að sauma, þá helst boli og scrunchies teygjur, og var með Instagram þar sem ég sýndi frá og seldi þann varning.
Núna hef ég hinsvegar meira snúið mér í að hanna föt og skart í tölvunni og er með það markmið að fara á námskeið eða jafnvel í nám tengt þessu í framtíðinni. Enn núna langar mig að koma hönnunum mínum á framfæri og þá helst ELVERUM vörumerkinu og þætti mjög vænt um ef þið styrkið þetta verkefni.

ELVERUM er vörumerki sem mun selja ýmsan fatnað og annann varning í netverslun og miða á Íslenskan markað. Hugmyndin er sú að einkenni þess er grafíkin sem prentuð verður á vörurnar. Eins og er þá markmið að vörumerkið muni selja hettupeysur; bæði í svörtu og hvítu, límmiðum og á prenti.
Ef söfnun Karolina Funds gengur upp væri farið í það að panta varninginn og koma upp vefsíðu fyrir ELVERUM. Helsta einkennisvaran yrðu hettupeysurnar enn þær munu lýta út eins og á myndinni hér fyrir ofan; merkið prentað á þær.
Takk
Karolina Fund ehf © 2026 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Bjargargata 1, 102 Reykjavík, Iceland