Þá er komið að fimmtu plötu Eika Einars og Byltingarboltanna sem ber heitið Skilaboð til þín. Sambland af bítlarokki og nýbylgju þar sem allt efni er frumsamið og með íslenskum textum. Eiki og Byltingarboltarnir funheitir sem fyrr og eru með skilaboð til þín.
... read more

FINISHED

This project is now finished.

€3,033

raised of €3,000 goal

0

days to go

29

Backers

101% FUNDED
No rewards exist or campaign is not public. Log in to add or edit rewards.
Get this! All gone!

Pledge € {{ reward.amount }} {{ reward.amount * 150 }} ISK


{{ reward.title }}

{{ reward.description }}

Limited ({{ stockLeft }} left of {{ reward.stock }} ) Gone (0 left of {{ reward.stock }} )
{{ reward.stock_reserved }} backer {{ reward.stock_reserved }} backers
Get this!

Pledge without a reward

Team

Plan

To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.

Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.

Eiki Einars og Byltingarboltarnir

100%
  • Lagaval og uppsetning
  • Upptökur
  • Mix & Master
  • Album design
  • Útgáfa 30. nóvember 2020

Further Information

Skilaboð til þín


Platan „Skilaboð til þín“ verður fimmta og nýjasta plata Eika Einars og Byltingarboltanna og inniheldur hún 8 lög sem eru öll með íslenskum texta. Boðskapur og þema plötunnar er eins og nafnið gefur til kynna: Skilaboð.

Það var hafist handa við að vinna plötuna á Spáni, þar sem Eiki býr, og teknir upp allir grunnar. Halldór Ágúst Björnsson eða Dóri í stúdíó Neptúnus, upptökustjóri, pródúsent og tónlistarmaður, kom út til Spánar með allt sitt hafurtask, líkt og hann gerði þegar „Stefnumót við lífið“ var tekið upp. Emil Hreiðar Björnsson, gítarleikari, lét sig ekki vanta að taka þátt í öllu fjörinu frekar en fyrri daginn, og kom til Spánar í um vikutíma og spilaði sig rækilega inn á plötuna með sínum frábæra gítarleik. En Emil og Eiki sjá um gítarleikinn á plötunni. Hálfdán Árnason sér um bassaleikinn, eins og á síðustu plötu og svo er einnig um Stefán ÓmarJakobsson, sem spilar á básúnu. Eiki sér svo um sönginn og raddirnar. Dóri sér um allt slagverkið og sjá þeir Eiki saman um allar útsetningar.

Það var svo komið heim til Íslands með grunnana og klárað allar upptökur hjá Dóra í stúdíó Neptúnus og mixað og upptökurnar svo sendar til London í masteringu.

Öll lög og textar eru eftir Eiki Einars. Lögin 8 á plötunni heita:

1. Skilaboð
2. Í hvaða spegil horfir þú?
3. Seglskútan
4. Fjórir skrýtnir kallar
5. Það sem gerir mann frjálsan
6. Það sem breytti sögunni
7. Brúin til lífsins
8. Ég elska allt það sem þú elskar

Lög af Skilaboð til þín

Sagan

Sagan hefur að geyma fimm plötur sem Eiki Einars og Byltingarboltarnir hafa gefið út. Fyrsta platan, sem kom út árið 2009, heitir Ég er með hugmynd! Önnur platan kom svo út síðla árs 2012 og heitir hún Góðar fréttir. Þriðja platan kom svo út tveimur árum seinna, eða í desember 2014 og heitir Maður lifandi! Stefnumót við lífið kom svo út í fyrra, en fór ekki á almennan markað fyrr en núna í sumar. Nýjasta platan sem er að koma út ber heitið Skilaboð til þín. Verður rakin saga þessara platna í stórum dráttum hér fyrir neðan með tilheyrandi sýnishornum og tóndæmum.

Plata 1 - Ég er með hugmynd!

Ég er með hugmynd!

Fyrsta platan, Ég er með hugmynd! kom út sumarið 2009. Þannig var að Eiki og Steini kynntust seinni hluta maímánaðar, þegar faðir Steina, Einar Þorsteinsson sem Eiki þekkti mætavel, leiddi þá saman. Steini sem að þekkti Halldór eða Dóra í Stúdíó Neptúnus og hafði starfað með honum um árabil, fór með Eika til Dóra. Myndaðist hjá þessu þríeyki þvílík stemning að það var ekki eftir neinu að bíða, heldur var bara talið í og hafist handa við að gera plötu. Eiki átti svo mikið af lögum og textum sem voru klárir til upptöku, að ekki vantaði efnið. Það var mikið fjörog gríðarlega mikil stemning í stúdíóinu og var unnið látlaust í júní og júlí að gerð plötunnar sem kom síðan út í ágúst. Að mestu unnu þeir Dóri, Eiki og Steini að afurðinni, þó mikill straumur af fólki, vinum og vandamönnum, hafi komið við í stúdíóinu og tekið óbeint þátt í allri stemningunni. Þetta er plata sem fékk mjög góðar viðtökur og fékk hún m.a. heilar 4 stjörnur af 5 mögulegum hjá honum Arnari Eggert Thoroddsen, tónlistargagnrýnanda hjá Morgunblaðinu.

Lögin á Ég er með hugmynd eru:
1. 1000 manns
2. Ég er með hugmynd!
3. Ert þú, þú?
4. Þrá kærleikans
5. Mitt á meðal manna
6. Sigur lífsins
7. Það sem einu sinni
8. Taktu því rólega
9. Í dag er hjálpræðisdagur
10. Fegurð

Sýnishorn af Ég er með hugmynd!

Plata 2 - Góðar fréttir

Góðar fréttir

Platan Góðar fréttir, kom út í desember 2012. Var þar samankomið sama liðið í hörku stuði, Byltingarboltarnir Eiki, Dóri og Steini, ásamt sem þeir bættu við sig trommuleikaranum úr Fjallabræðrum, Eysteini Eysteinssyni. Einnig koma við sögu bassaleikarinn Andri Ólafsson sem spilar í tveimur lögum og gítarleikarinn Magnús Axel Hansen, sem fer með gítarsóló í þremur lögum. Finnur Guðmundarsson Olguson sér um trompetleik. Svo eru tveir gestasöngvarar á plötunni, annars vegar Ásgeir Páll Ágústsson sem syngur eitt lag og svo Arnar Ingi Ólafsson sem varð að syngja lokalag plötunnar því það var svo mikið í stíl við Johnny Cash og hann nær honum svo vel að það er vart greinarmunur. Einnig komu Hulda Björk Þórisdóttir og Símon Jóhannesson við sögu á plötunni í bakröddunum. Sem sagt, vel skipað lið Byltingarbolta á þessari plötu til að flytja Góðar fréttir, enda mikil þörf þar á, þar sem ekki er skortur á öllum þeim leiðinda fréttum sem að heyrast allsstaðar úr heiminum frá allskonar fjölmiðlum. Það er þörf á að heyra góðar fréttir! Það gerðu Byltingarboltarnir sér grein fyrir.

Lögin á Góðar fréttir eru:
1. Hverjum þjónar þú?
2. Ávallt ungur
3. Góðar fréttir
4. Eftir hverju ertu að bíða?
5. Stóra spurning litla mannsins
6. Rödd kærleikans
7. Lífið eða dauðann
8. Ástarsöngur lífsins
9. Er allt í lagi?
10. Lífsins dyr
11. Óendanleg ást
12. Sælir eru þeir…

Sýnishorn af Góðar fréttir

Plata 3 - Maður lifandi!

Maður lifandi!

Maður lifandi er skemmtilegt hugtak og getur í orðsins fyllstu merkingu haft tvíræðna meiningu. Tjáningarformið að vera undrandi eða yfir sig hrifinn, eða þá að vera virkilega lifandi maður. Þessi plata kom út í desember 2014 og er hún full af lífi og krafti. Enda alltaf sama stemningin þegar þríeykið Eiki, Dóri og Steini hittastí stúdíóinu og hlutirnir fara að gerast. Andri Ólafsson sá um bassaleikinn og spilar Vilhjálmur Ingi Sigurðsson á trompet. Um bakraddir sjá svo um, auk Steina og Eika, Emilía Fannbergsdóttir og í einu laginu Árný Jóhanns.

Sem fyrr sér Eiki Einars um lagasmíðarog textagerð.

Lögin á Maður lifandi! eru:
1. Maður lifandi!
2. Vaknið!
3. Leikhús hugans
4. Fjallgöngumaðurinn
5. Þokan
6. Ég myndi njóta þess
7. Straujárnið
8. Hefurðu prófað

Sýnishorn af Maður lifandi!

Plata 4 - Stefnumót við lífið

Stefnumót við lífið

Stefnumót við lífið (Að lifalífinu lifandi) er fjórða plata Eika Einars og Byltingarboltanna og kom hún út að nafninu til í fyrra, þ.e. að farið var að dreifa lögum á útvarpsstöðvar, en fór ekki á almennan markað fyrr en núna á þessu ári. Þetta er eins og nafnið gefur til kynna, mjög hress og lifandi plata, full af lífi með gleðilegum boðskap.

Sá sem sér um laga og textasmíðar er Eiríkur Einarsson, eða Eiki Einars eins og hann er kallaður, en hann byrjaði mjög ungur að fara að semja lög og samdi hann m.a. sitt fyrsta lag úr fyrstu þremur gítargripunum sem hann lærði. Hann hafði hrifist mjög svo mikið af Bítlunum strax á unga aldri, þegar hann var 4 ára gamall, og ólst upp við að hlusta á þá daginn út og inn. Má segja að hann hafi gengið í gegnum góðan skóla þar hvað lagasmíðar varðar. Hann smitaðist svo af pönkinu og nýbylgjurokkinu þegarhann var 15 ára gamall þegar það kom til sögunnar og má segja að þessi tónlist sé ágætis blanda af bítlarokki og nýbylgju.

Eiki hefur alla tíð verið mjög þenkjandi og kemur það glögglega fram í textunum, hvort sem er um lífið ogtilveruna, tilgang lífsins, andleg málefni, gildi, viðhorf, meiningar eða markmið. Eins og má heyra á þessari plötu sem og þeim fyrri, en á þessari plötu er hugðarefnið og þemað „þegar ég fann lífið, eða réttara sagt, þegar lífið fann mig, og ég fór að lifa lífinu lifandi!“ En öll lagarheitin bera orðið „lífið“ í sér.

Eiki Einars og Byltingarboltarnirhafa samanstaðið að föstum kjarna sem unnið hafa saman fyrstu þrjár plöturnar. Það eru þeir Halldór Á. Björnsson eða Dóri í Stúdíó Neptúnus, pródúsent og píanóleikari, Steini Enok, söngvari og tónlistarmaður og svo Eiríkur Einarsson, gítarleikari, söngvari, laga- og textasmiður. Svo hafa bæst í Byltingarboltana hinir ýmsu hljóðfæraleikarar og söngvarar sem hafa tekið þátt í hverju verkefnifyrir sig.

Þegar það var kominn tími á að gera nýja plötu, var sú breyting orðin á að Eiki var farinn að gera út frá Spáni og Steini Enok var fluttur til Svíþjóðar. En það stoppaði ekki framkvæmdina, enda svo mikið af efni til að vinna, heldur kom Dóri bara til Spánar þar sem var stillt upp stúdíói í húsnæði sem við leigt og var hafist handa við að gera alla grunnana af upptökum af þessari plötu sem fékk heitið Stefnumót við lífið. Fleiri bættust í hópinn og ber þar hæst að telja Emil Hreiðar Björnsson, gítarleikara, sem lagði til mjög ferskan svip á plötuna. En Emil ásamt Eika sjá um gítarleikinn. Dóri sér um allt slagverkið. Var náð að gera góða grunna á Spáni sem farið var síðan með heim, þar sem tekið var upp það sem eftir var. Um bassaleikinn sér Hálfdán Árnason, Gísli Helgason spilar á blokkflautu, Stefán Ómar Jakobsson spilar á básúnu. Svo sjá Rafn Hlíðkvist Björgvinsson, Rúnar Ólafsson og Guðbjörg Elísa Hafsteinsdóttir um bakraddir.

Lögin á plötunni heita:
1. Konungur lífsins
2. Að lifa lífinu lifandi
3. Stefnumót við lífið
4. Ljós lífsins
5. Lagið um lífið
6. Lífið er fullkomnað
7. Lás og hlekkir, lyklar til lífs
8. Kærleikur lífsins
9. Sá sem lífið hefur
10. Gleði lífsins

Lög af Stefnumót við lífið

{{ userName(backer) }}

{{ backer.short_description }}

FINISHED

This project is now finished.

€3,033

raised of €3,000 goal

0

days to go

29

Backers

101% FUNDED
No rewards exist or campaign is not public. Log in to add or edit rewards.
Get this! All gone!

Pledge € {{ reward.amount }} {{ reward.amount * 150 }} ISK


{{ reward.title }}

{{ reward.description }}

Limited ({{ stockLeft }} left of {{ reward.stock }} ) Gone (0 left of {{ reward.stock }} )
{{ reward.stock_reserved }} backer {{ reward.stock_reserved }} backers
Get this!

Pledge without a reward

Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464