Dimmblá is a new Icelandic fashion collection influenced by the exclusive essence of Icelandic nature.
To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.
Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.
--- Icelandic description ---
Þessi söfnun gengur út á að fjármagna framleiðslu á nýrri fatalínu sem er væntanleg á markaðinn innan skamms. Hún hefur þegar fengið stórkostleg viðbrögð og vakið mikla athygli. Dimmblá er nýtt íslenskt vörumerki sem leggur áherslu á einstaka íslenska náttúru og náttúruöfl og er hannað af Heiðrúnu Ósk Sigfúsdóttur. Við treystum á að velunnarar, aðdáendur íslenskrar náttúru og þeim sem annt er um umhverfið styðji við verkefnið með því að leggja Karolina Fund söfnuninni lið.
Við berum mikla umhyggju fyrir umhverfinu og er fatnaðurinn eingöngu hannaður úr náttúrulegum efnum. Í fyrstu línunni er notuð náttúruleg bómull og Tencel.
Til þess að styrkja verkefnið smellir þú einfaldlega á ,,Pledge to project“ hnappinn hér hægra megin á síðunni. Því næst velur þú upphæð og greiðir með kreditkorti eða millifærir inn á bankareikning Karolina Fund. Einfaldara gæti það ekki verið. Ef þú ert að styrkja verkefni í fyrsta skipti í gegnum Karolina Fund þarftu að stofna aðgang en það er gert til að við getum afhent þér þitt áheit þegar verkefninu lýkur og sent þér upplýsingar um framgang verkefnisins. Karolina Fund tekur við áheitum í evrum til þess að einfalda erlendum aðilum þátttöku í verkefnum en upphæðin er gjaldfærð í krónum af íslenskum kreditkortum.
Þegar verkefnið hefur verið fjármagnað að fullu hér á Karolina Fund þá fá velunnarar okkar afhentan fatnað úr Norðurljósalínunni í janúar.
Um Dimmblá
Fyrsta fatalínan sýnir hið einstaka náttúrufyrirbæri Norðurljósin. Myndirnar sem prentaðar eru á allar flíkurnar eru teknar af landslags¬ljósmyndaranum Sigurði H. Stefnissyni.
Við teljum að náttúra Íslands sé einsök og við vinnum að því að leggja okkar af mörkum til að vernda náttúruna.
Við berum mikla umhyggju fyrir íslenskri náttúru og notum því eingöngu náttúruleg og umhverfisvæn efni. Það er dýrmætt að eiga ósnortna náttúru og mun hluti af ágóðanum af sölunni renna til Landverndar sem eru samtök sem standa vörð um íslenska náttúru.
Framleiddur verður tímalaus, klassískur og þægilegur fatnaður úr einföldum sniðum undir vörumerkinu Dimmblá. Hver flík er framleidd af ástríðu og lögð er áhersla á þessa einstöku íslensku náttúru. Okkur er umhugað um verndun umhverfisins og notum eingöngu viðurkennd náttúruleg efni í hönnun á fatnaði frá Dimmblá.
Upphafið á Dimmblá
Hönnuður Dimmblá Heiðrún Ósk Sigfúsdóttir hefur reynslu og þekkingu í markaðssetningu, mikla umhyggju fyrir íslenskri náttúru og ástríðu fyrir tísku. Ljósmyndir eftir íslenska ljósmyndara af náttúru og náttúruöflum Íslands eru margar einstaklega fallegar og hafa vakið eftirtekt og jafnvel heimsathygli. Heiðrún Ósk sá tækifæri í að hanna nýja vörulína með kraftmiklum myndum af náttúrunni eftir virta ljósmyndara. Hún hóf að hanna fyrstu fatalínuna undir nafninu Dimmblá snemma á þessu ári. Hún er í samstarfi við hóp af hæfileikaríku fólki og mun fyrsta fatalínan hennar koma á markað innan skamms.
Einstök Hönnun
Í hönnun Dimmblá er mikil áhersla lögð á tignarleika, fegurð og kraft. Hver flík ber staðarnafn og vísar til þess staðar þar sem myndirnar eru teknar af ljósmyndaranum Sigurði Hrafni Stefnissyni.
Heiðmörk kjóll
Heiðmörk er náttúruperla nálægt Reykjavík. Heiðmörk er fallegur kvöldkjóll sem mun tvímælalaust fá marga til að snúa sér við í aðdáun.
Lón kjólabolur
Lón vísar til Jökulsárlóns og er hversdagsflík sem kallar fram minningar um þennan einstaka stað.
Strönd kjólabolur
Strönd vísar til Vatnleysustrandar sem er strandlengja á norðanverðum Reykjanesskaga og er um 15 km að lengd. Norðurljósin sjást oft frá Reykjanesi. Þetta er stórglæsilegur kjólabolur sem vekur eftirtekt.
Í fyrstu línunni eru fimm flíkur og verður hver flík fáanleg í tveimur stærðum, stærð S/M og M/L.
Flutningskostnaður leggst á áheiti sem eru 100 evrur eða um 16.500 kr. og hærri.
Fatalínan mun verða fáanleg í verslunum á Íslandi þar sem seld er íslensk hönnun og í vefverslunum.
Við erum mjög ánægð og þakklát fyrir þitt framlag
dimmbla.is
facebook.com/Dimmbla
Stúdíóljósmyndir: Atli Már Hafsteinsson
Náttúruljósmyndir: Lýður Geir Guðmundsson
Model: Ásdís Svava Hallgrímsdóttir
Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464