The Flopalongs want to teach children about endangered animals. Help us create a short movie from this ambitious project.
To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.
Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.
--- Íslenskur texti er neðar á síðunni ---
Why make a cartoon about endangered animals with superpowers? Because right now, there are thousands of species of animals facing extinction in our world (and superpowers are cool).
The animals are facing extinction for various reasons. Some are doing so for natural reasons, but too many are doing so because of how humans have invanded their natural habitat with no regard to what was there before. Some areas have been changed so much that it is impossible for animals to survive there anymore. This is not limited to just one continent, this is a global problem. The animals range from the mighty Siberian tiger down to the small cone snail.
Enter the Flopalongs!
--- Icelandic description ---
Til hvers að gera teiknimynd um dýr sem eru ofurhetjur og í útrýmingarhættu? Vegna þess að núna eru þúsundir dýrategunda í útrýmingarhættu og ofurhetjur eru svalar.
Dýr lenda í útrýmingarhættu af ýmsum ástæðum. Stundum er það eðlilegt að dýrategund deyji út, hún hættir að aðlaga sig umhverfi eða önnur dýrategund yfirtekur svæðið sem hin lifði á. Alltof oft er það þó af mannavöldum. Mannskepnan hefur mikil áhrif á umhverfið og dýrin sem búa þar. Þetta er ekki takmarkað við ákveðin landssvæði eða heimsálfur. Þetta er vandamál um allan hnöttinn. Þetta eru eins ólíkar tegundir og Síberíutígurinn og Keilusnigillinn.
Þá kynnum við Flopalongs til sögunnar!
Flopalongs eru hópur dýra sem var einu sinni í einkadýragarði á eyju í eigu illmennisins Gerg. Gerg er vondur og gráðugur maður sem vill ekki sjá neitt óspillt og sækist eftir því að sölsa undir sig allar náttúruaðlindir sem hann getur. Hann skilur eftir sig sviðna jörð hvert sem hann fer.
Það er svo Komododreki að nafni Igbot sem sleppur fyrstur úr prísundunni og kemst í tæri við dularfullan loftstein. Snerting við loftsteininn gefur honum ofurkrafta sem hann deilir svo með hinum Flopalongunum þegar hann snýr aftur til að hjálpa þeim að sleppa líka.
Flopalongs dýrin eiga fullt erindi við börn í dag. Þau eru góðhjörtuð og kenna að það sé hægt að lifa í sátt og samlyndi við menn og dýr, án þess þó að vera með predikun. Teiknimyndirnar verða ekki eingöngu mötun, heldur verða börnin frædd um dýrin á meðan á þáttunum stendur, og þau hvött til að kynna sér meira um dýrin eftir þættina. Kennsla í gegnum afþreyingu (eða "edutainment") er vinsæl þessa dagana og getur virkað hvetjandi á börn að læra t.d. um dýrategundir í útrýmingarhættu og þá líka hvað hægt er að gera til að hjálpa þeim.
Greene Toys LLC og Þröstur Bragason hafa sameinað krafta sína í þeim tilgangi að búa til stuttmynd sem segir þessa sögu Flopalongs dýranna.
John Robert Greene skapaði Flopalongs upphaflega. Hann hefur komið að sjónvarpsþáttagerð fyrir Merv Griffin. Hann hefur líka gegnt ýmsum störfum fyrir Coca Cola Company, Procter and Gamble og Revlon.
Þröstur Bragason er forstöðumaður verkefnisins á Íslandi. Hann ólst upp við að horfa á Star Wars, He-Man og Transformers og er það líklega mikill örlagavaldur og faktor í því afhverju hann valdi sér teiknimyndagerð sem framtíðarstarf. Þresti er annt um umhverfið og hann sér t.d. ekki bráðnun íshellnanna sem sérstakt viðskiptatækifæri heldur frekar sem viðvörunarljós. Hann hefur unnið hjá Latabæ, CCP og hefur komið að mörgum mismunandi auglýsinga- og upplýsingaverkefnum, s.s. áramótaauglýsingu Icelandair og DAIM. Ef vel er að gáð sést hann líka hlaupa um á ströndum Iwo Jima í myndinni Flags of our Fathers. Þröstur stundar fjallahjólreiðar af miklu kappi og hefur m.a. keppt í cyclocross áhugamanna keppnum.
Þegar búið er að framleiða stuttmyndina eru næstu skref þau að kynna hana fyrir fjárfestum með það að markmiði að tryggja fjármögnun á gerð sjónvarpsþátta um Flopalongs dýrin. Þættirnir verða framleiddir á Íslandi og mun hluti af tekjum tengdar þeim renna til náttúru- og dýraverndunarsamtaka.
Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464