Skemmtilegra fyrir austan.
Hvaða Austfirðingur hefur ekki, á einhverjum tímapunkti, þurft að skipuleggja afþreyingu fyrir hóp og komist að því að það er alls ekki auðvelt?
Hlussubolti er ódýr, skemmtileg og einföld lausn á þessum vanda. Þið komið til okkar eða við til ykkar og það þarf engu að redda nema rafmagni og aðstöðu.
Með því að bjóða upp á Hlussubolta á Austurlandi er verið að bæta við afþreyingu fyrir fullorðna í fjórðungnum.
Bækistöðvar Hlussubolta verða á Egilsstöðum og verður hægt að stunda Hlussubolta bæði sumar og vetur.
Einnig verður hægt að bóka Hlussubolta á aðra staði á Austurlandi og förum við þá yfir ykkar þarfir og búum til dagskrá sem uppfyllir þær.
Hlussubolti er fyrir alla eldri en 15 ára. Ekki er nauðsynlegt að hafa nokkurn bakgrunn í íþróttum, Hlussubolti snýst um að skemmta sér og öðrum.
Athugið þó að ekki er æskilegt að stunda Hlussubolta ef menn eru slæmir í baki eða eiga við annan stoðkerfisvanda að etja.
Hlussubolta stunda allir á eigin ábyrgð.
Hægt er að hafa samband við okkur í gegnum tölvupóst (hlussubolti@gmail.com) eða í síma 8991948 fyrir frekari upplýsingar.
Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464