Sunna Friðjónsdóttir

  • Piano
  • notating
  • healing
  • flute

Sunna Friðjónsdóttir er 26 ára söngkona, lagasmiður og tónskáld búsett á Íslandi. Einnig starfar Sunna með heilun og meðferðir sem stuðla að bættri andlegri líðan. Sunna ólst upp í klassísku tónlistarumhverfi og er með bakgrunn í klassískum píanó- og þverflautuleik. Hún hóf háskólanám í þverflautueinleik í Listaháskóla Íslands en útskrifaðst á Skapandi Tónlistarmiðlunarbraut með áherslu á söng og lagasmíðar árið 2017. Sunna gaf síðan út sína fyrstu breiðskífu með eigin efni 2018, plötuna Enclose. Sú plata var tilnefnd til Íslensku Tónlistarverðlaunanna sem plata ársins í opnum flokki. Sunna er núna að gefa út sína aðra plötu í lok árs.

Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Powered by Karolina