Helga Björg Gylfadóttir, fædd 1983, útskrifaðist af Listnámsbraut frá Listaháskóla Íslands með grunn-menntun frá Myndlistaskóla Reykjavíkur og Goldsmiths University, Lundúnum. Hún útskrifaðist með láði frá Dartington College of the Arts, Devon, UK 2009 með Master í Myndrænni Sviðslist með áherslu á tíma. Í framhaldi af því fór Helga Björg m.a. að vinna hjá Þjóðleikhúsinu við gerð leikmynda, kom við í Sjómannaskóla Íslands og útskrifaðist með próf til siglinga. Hún sótti sér menntun í kvikmynda- leiksjórn/framleiðslu frá Kvikmyndaskóla Íslands 2012-2013 & M.A. menntun í Kvikmyndaskrifum frá London Film School 2018-2019. Helga Björg hefur tekið þátt í fjölmörgum myndlista sýningum, sýnt m.a. í Grikklandi, Tyrklandi og Englandi og Íslandi. Ber helst að nefna Nýlistasafnið, Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn, Sequences og Gallerí Dvergur. Helga Björg stjórnaði eigin útvarpsþætti í Devon með áherslu á tónlist frá 2008 & 2009 undir nafninu Holy Rock.
Helga Björg hefur unnið að ýmsum kvikmyndaverkefnum, stuttmyndum og myndum í fullri lengd og frumsýndi sýna fyrstu "hefðbundnu" stuttmynd á Riff (Reykjavik International Film Festival) í fyrra ANNA sem hún skrifaði, leikstýrði, klippti & framleiddi. Hún vinnur í dag við að sýningastýra myndlistasýningu í Feneyjum sem opnar meðfram Feneyja Myndlista Tvíæringnum 2026. Sjá viðtal og gagnrýni í Grapevine við HBG myndlistamann, sýningastýru og kvikmynda leikstjóra:
ANNA Kvikmynd: www.facebook.com/ANNAakaAHHA
Holy Rock Útvarpsþáttaröð: www.soundcloud.com/holy-rock
