Ágústa Skúladóttir

  • choreographing

Ágústa Skúladóttir lærði leiklist hjá Monicu Pagneux, Philippe Gauliere, Theatre DeComplicite, John Wright og David Glass. Hún hefur leikstýrt um það bil 40 leiksýningum á undanförnum 14 árum, einkum á nýjum íslenskum verkum. Meðal helstu sýninga hennar má nefna Grimmsævintýri, Klaufa og kóngsdætur, Bólu-Hjálmar, Ballið á Bessastöðum, Herra Pottu og Ungfrú Lok, Landið Vifru, Háaloft, Sellofón, Halldór í Hollywood, Eldhús eftirmáli, Stórfengleg, Umbreytingu, Ævintýri Munkhásens, Hjartaspaða, Dýrin íHálsaskógi, Aladdín, Línu langsokk og Öldina okkar. Þá eru ótaldar óperusýningarnar Cosy fan tutte, Ástardrykkurinn og Töfraflautan, sem var fyrsta uppfærsla Íslensku óperunnar í EldborgarsalHörpu. Sýningar Ágústu hafa hlotið marvíslegar viðurkenningar, til dæmisGrímuverðlaun og menningarverðlaun DV, en auk þess hlaut hún Stefaníustjakann árið 2009.

Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Powered by Karolina