Hildur Óladóttir

´Ég er leikskólakennari að mennt með master í menntunarfræðum. Hef starfað til fjölda ára sem leikskólakennari á Akureyri og síðast sem aðstoðarleikskólakennari frá 2013-2016. Árið 2016 greindist ég með kulnun (Break down). Upp frá því hef ég barist við að ná aftur góðum bata og finna gömlu góðu Hildi mæta á ný. Eitt af mínum bestu verkum í bataferlinu var að kaupa Mela og hefur sú vinna sem ég hef unnið við það verkefni klárlega hjálpað mér að ná tökum á lífi mínu aftur. Melaverkefnið er ótrúlega skemmtilegt verkefni og ég hlakka til að sjá drauma mína þar verða að veruleika.

Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Powered by Karolina