Markús Bjarnason

Singer/Songwriter

LITABÓK FYRIR LOFTHRÆDDA


Eftir að hafa teiknað fyrir myndlistarsýninguna KORTER Í SÓL í sumar og haust sem var síðan frestað fram á næsta ár kom ákveðið tómarúm og ég fór að teikna á annan hátt. Myndir komu sem ég hugsaði að væri gaman að lita. En í stað þess að lita þær sjálfur þá ákvað ég að fara teikna fyrir litabækur sem yrðu framleiddar í fjöldaupplagi. Þær yrðu prentaðar á hágæðapappír með sérstökum rifgötum, þar sem auðvelt væri að taka eina og eina úr, ramma inn og setja upp á vegg. Fyrsta bókin fékk svo nafnið LITABÓK FYRIR LOFTHRÆDDA. Sú næsta LITABÓK FYRIR LITBLINDA og sú þriðja: LITABÓK FYRIR LETINGJA. Safnið öllum þremur!


LITABÓK FYRIR LOFTHRÆDDA kemur út föstudaginn 4.desember.

Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Powered by Karolina