Katrin Osp Jonsdottir

  • Ljóðskáld
  • textasmiður
  • Lyrics


Jenný Lilja fæddist þann 25.júlí 2012. Hún er eineggja tvíburi og heitir tvíburasystir hennar Dagmar Lilja. Jenný á tvö önnur systkini, Júlíu Klöru (2008) og Mikael Inga (2016). Foreldrar þeirra eru Rebekka og Gunnar.


Þann 24.október árið 2015 hringdi Hrabba systir í mig og sagði mér þær fréttir að Rebekka vinkona hennar hefði misst Jennýju Lilju þá þriggja ára af slysförum. Þann dag fannst mér sorgin áþreifanleg og ég gat ekki hætt að hugsa til Rebekku og fjölskyldunnar allar. Ég settist niður og skrifaði ljóðið Sorg. 

Ljóðið sat lengi í mér og ég gat ekki hætt að hugsa um það svo ég ákvað að senda gömlum skólabróður ljóðið og spurði hvort hann sæi fyrir sér að hægt væri að semja lag við það. Þessi skólabróðir minn, Stefán Jakobsson, var fljótur að svara, það yrði að setja vængi á þetta ljóð. 

Gömul og góð vinkona mín, Rósa Ásgeirsdóttir, kom síðar til mín í kaffi þar sem ljóðið barst í tal. Meðan hún sat hjá mér kom lag upp í huga hennar, hún tók upp símann sinn og raulaði það inn. Nokkrum dögum síðar var komið uppkast af laginu okkar. Fúsi Óttarsson (frændi minn) trommari lagsins bauðst til þess að hafa samband við Kristján Edelstein (skáfrænda minn) og fá hann til að útsetja lagið fyrir okkur. Kristján tók lagið ljúfum höndum, spilaði á og bætti inn hinum ýmsu hljóðfærum og breytti laginu í drauma rokk- ballöðuna mína. Eftir að hafa klárað að útsetja hljóðfæraleikinn kom Stebbi Jak og söng með sinni kröftugu rödd af mikilli innlifun. 

Foreldrar Jennýjar Lilju, þau Rebekka og Gunni, hafa valið nafn á lagið en það heitir Einn dag í senn. 


Þetta er einstaklega falleg 80´s rokk ballaða sem hjálpar okkur öllum að halda minningu ástvina okkar á lofti.


Þú getur keypt lagið hér fyrir mismunandi upphæðir. 

Öllum kostnaði við framleiðslu lagsins var haldið í lágmarki og mun hluti af því sem safnast hér fara í framleiðslukostnað lagsins og í minningarsjóð Jennýjar Lilju.


Hægt er að lesa sér til um sjóðinn á www.minningjennyarlilju.is


Með kærum þökkum fyrir stuðninginn.


Katrín Ösp Jónsdóttir

www.katrinjons.weebly.com (ljóðabókin mín)


Einn dag í senn


Þögult myrkrið þunga

Þekur hjartað í mér

Ber sorgina drunga

Að bugast ég fer

Hvað get ég gert

Til að fá þig til mín aftur?

Er lífið þess vert?

 dvínar dauðans kraftur?

Ég finn að ég anda

Svo á lífi ég er

Án þín á milli minna handa

Hver er tilgangurinn hér?

Aldrei finn ég aðra slíka

Sem elska mun eins heitt

Má ég koma líka?

Án þín er lífið ei neitt


Farinn er minn mesti fengur

Á ljósið ég verð að trúa

  tár þín þerrað get ei lengur                          

Trúi að verið sé þér að hlúa.


Hvað get ég gert

Til að fá þig til mín aftur?

Er lífið þess vert?

 dvínar dauðans kraftur?


Ég finn að ég anda

Svo á lífi ég er

Án þín á milli minna handa

Hver er tilgangurinn hér?

Aldrei finn ég aðra slíka

Sem elska mun eins heitt

Má ég koma líka?

Án þín er lífið ei neitt


Að lifa án þín verð að læra

Að anda einn dag í senn

ástin mín kæra

Í faðm minn ratar þú enn


Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Powered by Karolina