Pétur Bjarnason

Einstaklingur með fjölbreytt áhugamál og lítinn rekstur, bókaútgáfu sem heitir Flóki forlag og hóf starfsemi 2015.

Pétur Bjarnason, sem stendur fyrir útgáfu pésans Vasagrín fyrir golfara og guðhrætt fólk ásamt öðrum bókum Flóka forlags hefur reynt fyrir sér í golfíþróttinni í þrjá áratugi, en á samt enn eitthvað ólært í þeim efnum. Það hindrar hann þó ekki í að iðka þetta sport á góðum degi hvort heldur á vetri eða sumri.
Auk golfáhugans leggur hann fyrir sig ýmis skrif, ritstjórnarstörf, prófarkalestur og nú síðast útgáfustarfsemi, sem hefur enn ekki gert hann að auðugum manni, en það gæti breyst innan tíðar.
Hann stefnir á atvinnumennsku í golfinu innan næstu tuttugu ára ef öll plön ganga upp.

Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Powered by Karolina