Guðmundur Norðdahl

  • Musician music teacher conductor composer

Guðmundur Norðdahl er tónlistarkennari, til heimilis í Jökulgrunni í Reykjavík. Guðmundur er fæddur árið 1928 í Reykjavík.

Guðmundur var tilnefndur til íslensku menntaverðlaunanna 2006 og 2009 vegna hins mikla framlags til eflingartónlistarnáms sem raun ber vitni, útgáfuframsækins kennsluefnis, frumkvöðlastarfs á sviði þróunar hjálpartækja fyrirhljóðfæri. Ævistarf hans hefur verið tónlistarkennsla barna og einnig mikilfenglegt framlag til þróunar árangursríkra kennsluhátta og framsækins kennsluefnis fyrir börn. Hefur framangreint stuðlað að nýungum í skólastarfi.

Guðmundur Norðdahl er barnakennari, klarinettleikari, tónlistarkennari,tónskáld og hljómsveitastjóri. Fyrst og fremst er hann barnakennari. Sem tónlistarmaður er Guðmundur skipuleggjandi tónlistarlífs og frumkvöðull á sviði framsækinna kennsluhátta.

Hann lærði á klarinett á árunum 1946 til ársins 1949 og auk þess píanóleik og tónfræði við Tónlistarskólann í Reykjavík. Árið 1960 hlaut hann kennararéttindi. Guðmundur stundaði sérnám hjá Dr. Victor Urbancic, Jóni Þórarinnsyni og Dr. Róbert A. Ottósyni um tveggja ára skeið. Árið 1970 útskrifaðist Guðmundur frá Orff Institute Mozarteum í Salzburg í Austurríki. Sama ár tók hann þátt í að stjórna námskeiði á vegum Ernst Read stofnunarinnar í Englandi. Gudmundur sótti fjölmörg námskeið á sviði tónlistar og tónlistarkennslu, bæði á Íslandi og erlendis; m.a í Ungverjalandi, bandaríkjum Norður Ameríku og Canada.

Starfsferill sem kennari

Kennsluferil sinn hóf Guðmundur árið 1956 í barnaskóla Keflavíkur. Á sama tíma kenndi hann við Tónlistarskóla Keflavíkur. Frá árinu 1962 til ársins 1995 var Guðmundur kennari margra skóla; við Barnaskóla Garðahrepps, Tónlistarskóla Garðahrepps, Tónlistarskólann í Sandgerði, Tónlistardeild Stórutjarnarskóla, Tónlistardeild Hafralækjarskóla, og Tónlistarskóla Akraness. Alls spannar kennsluferill Guðmundar nú þegar yfir 60 ár.

Skipuleggjandi tónlistarlífs og tónlistarkennslu

Sem skipuleggjandi tónlistarlífs og tónlistarkennslu barna hefur Guðmundur verið mjög ötull. Hann var einn af stofnendum Tónlistarskóla Keflavíkur, stofnandi og skólastjóri Tónlistarskólans í Sandgerði. Árið 1964 var Guðmundur ráðinn skólastjóri hins nýstofnaða Tónlistarskóla í Garðahrepp, gegndi hann því starfi til ársins 1975. Gudmundur var einnig stofnandi og stjórnandi kóra og hljómsveita alla tíð. Einkum barnakóra og hljómsveita. Á ferli sínum stofnaði hann og stjórnaði mörgum skólahljómsveitum, Lúðrasveit Keflavíkur, Lúðrasveit Sandgerðis. Guðmundur var stjórnandi Lúðrasveitar Reykjavíkur 1994-1995. Auk barnakennslu, stjórnun hljómsveita, kóra og útgáfu kennsluefnis á sviði tónlistar; þá samdi Guðmundur og útsetti fjölmörg sönglög og tónverk.

Þróun árangursríkra kennsluhátta og kennslutækja

Guðmundur hefur verið að þróa ýmisskonar kennsluaðferðir og kennsluefni í áratugi. Þessar aðferðir hafa reynst vel, (bækur og myndbönd og DVD um söng og blokkflautuleik) og eru aðferðirnar notaðar víða um land. Guðmundur hefur einnig þróað sérstakt tæki ”GN Lyftistöngina" sem er tæki til að auðvelda ungum nemendum í klarinettleik námið. Lyftistöngin er lausn á á líkamlegum vandamálum sem hrjá klarinettleikara. GN Lyftistöngin á sér enga hliðstæðu á heimsvísu. Framangreint er merkt framlag, sem færir kennurum nýjar aðferðir og tæki til að ná árangri í kennslu. Guðmundur hefur kennt blokkflautuleik og klarinettleik ásamt söng og notað til þess eigið efni. Þetta er góður undirbúningur fyrir frekara tónlistarnám, enda margir notið þess.

Höfundur kennsluefnis og nýungar í skólastarfi

Guðmundur hefur verið iðinn við að gefa út framsækið kennsluefni í bókarformi, á geisladiskum og myndböndum.

Útgefið efni Guðmundar er:

1975 Flautan og litirnir I. hefti og Flautan og litirnir II. hefti. Bækurnar voru fyrst gefnar út árið 1975 og margoft síðan. Prentuð eintök skipta tugþúsundum og hafa ávallt selst upp.

Flautan og litirnir I. og II hefti hafa verið einhverjar vinsælustu kennslubækur í tónlistarkennslu barna hér á landi í yfir 40 ár. Nemendur sem notið hafa kennsluhátta samkvæmt þeim bókum skipta þúsundum í gegnum tíðina. Flautan og litirnir I. og II. hefti eru litabækur ætlaðar yngstu nemendunum og uppúr. Allar myndir bókanna er hægt að lita með þurrum litum, allt frá forsíðu til enda bókar.

Nemendur njóta þess að lita myndir í bókinni um leið og þau læra á blokkflautu. Nóturnar hafa hver sinn lit, bláa nótan, gula nótan, svarta.o.sv.frv. Börnin ná fljótt tökum á blokkflautuleiknum því þegar hver nóta er kennd við litina, sem þau þekkja, þá flýtir það fyrir framförum. Á seinni stigum er hætt að kenna nóturnar við liti en börnin hafa þá þegar lært með þessu kerfi hvar nóturnar eru á nótnastrengjum og litirnir verða óþarfir. Reynslan hefur sýnt að um er að ræða afar heppilega aðferð til að kenna jafnvel yngstu nemendum fyrstu sporin í tónlistariðkun.

1988 Flautan og litirnir 1-9 kennsluþættir. Myndböndin innihalda kennsluefni sem er samhæft efni samnefndra bóka. Kennsluþættirnir voru sýndir í Ríkissjónvarpinu á árunum 1989 og 1995

Karolina Fund ehf © 2026 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Bjargargata 1, 102 Reykjavík, Iceland | Powered by Karolina