Dóa Dagný Böðvarsdóttir

Er á 21 ári. Draumur minn frá því ég man eftir mér hefur verið að skrifa og gefa út bækur. Nú er komið að því að láta drauminn rætast.

Ég fæddist árið 1995 í Reykjavík og er Breiðhyltingur. Ég stunda nám við Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Ég hef samið ljóð, skrifað sögur og sagt sögur með myndböndum frá því að ég man eftir mér.

Áhugamál mín eru margbreytileg m.a.ritsmíðar, myndbandagerð, bókalestur, þjóðfræði og goðsagnir,Íslendingasögurnar og fornljóð, kvikmyndir, kvikmyndatónlist o.fl. Ég fer mikið á söfn, tónleika og í leikhús.

Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Powered by Karolina