Kristin Guðmundsdóttir

Ég er matartæknir að mennt og vann við það í nokkur ár. Þar tók ég eftir því hve fólk af erlendum uppruna átti erfitt með að finna lestrarefni á íslensku við sitt hæfi – flestar bækur voru annaðhvort barnabækur eða á erfiðu og gömlu máli. Þarna sá ég skýrt tækifæri til að gera gagn. Ég ákvað að bæta við mig skrifstofu- og tölvunámi hjá NTV, kláraði stúdentinn og skipti yfir í skrifstofustarf sem mér líkaði vel við. Eftir námskeið hjá Endurmenntun HÍ árið 2008 fór ég að skrifa og á 9 handrit að skáldsögum.


Í kringum 2014 byrjaði ég að þróa hugmyndir að léttlestrarbókum í samstarfi við fólk af ýmsum þjóðernum. Fyrsta bókin í þeim flokki, Nýjar slóðir, kom út fyrir jól árið 2019 og gekk vel. Árið 2021 fylgdi Óvænt ferðalag með gagnlegum tilvísunum og síðan þá hef ég gefið út eina bók á ári og byggt upp dyggan hóp fastra viðskiptavina heima og erlendis. Bækurnar eru með 12 stuttum, sjálfstæðum sögum úr ýmsum áttum þar sem flókin orð og það sem fólki finnst skrýtið á Íslandi eru útskýrð.


Nú er komið að stóru stundinni: Að stofna formlega Ýtar bókaforlag og gefa út mína fyrstu skáldsögu fyrir almennan markað, Frá norðri til nýrra heima!

Karolina Fund ehf © 2026 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Bjargargata 1, 102 Reykjavík, Iceland | Powered by Karolina