Sigurdís er píanóleikari, tónskáld og söngkona, búsett í Danmörku. Sem tónskáld og útsetjari hefur Sigurdís unnið með Reykjavík Big Band, Winnipeg Jazz Orchestra, Odense Jazz Orchestra, Odense Kammerkor og Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps. Hún komst í úrslit Nordic Composer Contest árið 2023, haldinn af Odense Jazz Orchestra og hefur gefið út ábreiðuna I Get Along Without You Very Well, sem hefur fengið yfir 120.000 spilanir á Spotify. Sigurdís starfrækir tríó undir eigin nafni sem hefur spilað víða á Íslandi og í Danmörku, m.a. í Hóladómskirkju, Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi, Hörpunni og í Nordatlantisk Hus í Óðinsvéum.
Sigurdís lauk masternámi í jazzpíanóleik og tónsmíðum frá Syddansk Musikkonservatorium árið 2023. Í beinu framhaldi hóf hún sólistanám við sama skóla og á nú einungis eftir lokatónleika, sem hún flytur 9. september 2026.