Ólafur Haukur Símonarson, leikskáld (f. 1947) ólst upp í Reykjavík. Hann stundaði nám í hönnun, bókmenntum og leikhúsfræðum í Kaupmannahöfn 1965–70, í Frakklandi 1970–71, og síðan aftur í Kaupmannahöfn 1972–74. Ólafur hefur unnið ýmis störf til sjós og lands, hann var dagskrárgerðarmaður hjá Ríkissjónvarpinu 1974–76 og gerði heimildarkvikmyndir um íslenskt þjóðlíf, en frá árinu 1976 hefur hann eingöngu sinnt bókmenntaskrifum og þýðingum. Hann hefur samið fjölda leikrita fyrir svið, útvarp og sjónvarp sem notið hafa mikilla vinsælda. Nefna má Blómarósir, Hafið, Gauragang, Þrek og tár, Kennarar óskast og Fólkið í blokkinni. Fyrir utan leikrit, ljóð og smásögur hefur Ólafur sent frá sér fjölmargar skáldsögur, svo sem Vatn á myllu kölska, Gauragang og Rigning með köflum. Einnig hefur hann samið og gefið út á hljómplötum fjölda sönglaga sem einkum höfða til ungra hlustenda (Eninga meninga, Hattur og Fattur, Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir, Fólkið í blokkinni). Ólafur Haukur hefur þýtt fjölda bóka, leikrita og kvikmynda.
Les Boréales du Normandie bókmenntaverðlaunin fyrir bestu norrænu sakamálasöguna, 1997
Varaforseti Leikskáldanefndar Alþjóðaleiklistarsambandsins I.T.I. 1993-2002.
Sat í verkefnavalsnefnd Leiklistarhátíðarinnar í Bonn (Bonner Theater Biennale) árin 1992 og 1994.
Heiðursfélagi Leikskáldanefndar Alþjóðaleiklistarsambandsins I.T.I. 2006.
Heiðursfélagi Félags leikskálda og handritshöfunda, 2007.
Heiðursfélagi FTT (Félags tónskálda og textahöfunda 2008.
Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar fyrir myndskreytingar Lindu Ólafsdóttur í bók Ólafs, Uglu og Fóu, 2016.
Riddarakross hinnar Íslensku fálkaorðu fyrir framlag til leikritunar og bókmennta, 2o20.
Heiðursfélagi Rithöfundasambands Íslands, 2022.
Heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands, 2022.