Guðlaugur Viktorsson

Tónlistarmaður

Ég ég nýliði í kammerkórnum Hymodia. Við fyrstu kynni er ekki annað að sjá en að þetta sé traustur og skapandi hópur og ég hlakka til samstarfsins. Þetta eru svosum ekki mín fyrstu skref í kórsöng en ég hef sungið í mörgum fremstu kórum landsins undir stjórn valinkunnra kórstjóra. Árin 2012-2014 var ég í framhaldsnámi á Jótlandi og söng í kór Dómkirkjunnar í Álaborg (Budolfi) og í kammerkórnum Coro Misto undir stjórn Søren Birch sem er landskunnur stjórnandi og tónskáld. Sjálfur hef ég starfað við tónlist, kennslu og kórstjórn um árabil. Lífið hefur flesta daga verið söngur og ég tel mig heppinn að fá tækifæri til að syngja með þessu frábæra listafólki í Hymnodia.

Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Powered by Karolina