Jón Rafnsson

  • music publisher
  • music distribution
  • CD concept design

Jón Rafnsson, stofnandi og eigandi JR Music, hefur starfað við tónlist frá unglingsárum. Tónlistarmenntunin var í fyrstu sjálfsnám á rafbassa, með tilheyrandi spilamennsku á sveitaböllum á suðurlandinu. Frá 1976 og fram til ársins 1983 stundaði hann klassískt tónlistarnám við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar; á fiðlu, píanó og kontrabassa og síðan framhaldsnám í kontrabassaleik hjá Thorvald Fredin í Stokkhólmi. Jón lauk einnig tónlistarkennaraprófi árið 1987 frá SMI (Stockholms musikpedagogiska institut), þar sem aðalnámsgreinar voru almenn kennslufræði og kontrabassi auk kór- og hljómsveitarstjórnar. Hann hefur allt frá því hann flutti heim frá Svíþjóð árið 1990 verið mjög virkur í íslensku tónlistarlífi og leikið jöfnum höndum hina ýmsu tónlistarstíla; jazz, blús, rokk, klassík, með danshljómsveitum, unnið í leikhúsum, bæði sem tónlistarstjóri og hljóðfæraleikari auk þess að leika inn á fjölda geisladiska. Jón leikur með nokkrum tónlistarhópum, s.s. Hot Eskimos, Guitar Islancio og Delizie Italiane auk fleiri tilfallandi tónlistarverkefna og kennir við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.

Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Powered by Karolina