Ég byrjaði að syngja í Hymnodiu árið 2004 held ég. Í kórnum er skemmtilegt fólk sem er gaman að vera með og syngja með. Kórinn hefur komið mjög víða við í sinni tónlistarsköpun svo ekki sé meira sagt og öll verkefnin verið bæði skemmtileg og krefjandi. Í Hymnodíu á ég marga góða vini og nýt með þeim góðra stunda hvort sem er á kóræfingum eða öðrum stefnumótum.

Þarna brugðum við á leik fyrir utan eina kirkjuna í 10/10 prógramminu okkar; 10 tónleikar í 10 kirkjum á 10 ára afmæli kórsins.

Mynd tekin á jólatónleikum kórsins en kórinn syngur alltaf jólalög á tónleikum rétt fyrir jólin, ýmist einn eða í samstarfi við aðra listamenn.