Herdís Ármanns

Söngurinn hefur lengi verið stór hluti af mínu lífi. Ég stundaði nám við Tónlistarskóla Eyjafjarðar hjá Þuríði Baldursdóttir og lauk þaðan framhaldsprófi 2011 í klassískum söng. Stundaði einnig framhaldsnám við Tónlistarskóla Akureyrar hjá Michael Jón Clarke 2012 og 2013.

Ýmislegt hefur verið brasað í gegnum tíðina, en auk þess að vera bóndi, hrossaræktandi, söngkona við hin ýmsu tækifæri, meðferðarfulltrúi á Meðferðarheimilinu Laugalandi, þá er ég meðlimur hins frábæra kammenkórs Hymnodiu frá Akureyri með stjórnandanum, Eyþóri Inga Jónssyni.

Kórinn er nú að safna fyrir útgáfu mjög óvanalegrar hljómplötu. Sjá hér: https://www.karolinafund.com/profile/view/15255

Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Powered by Karolina