Arnbjörg Sigurðardóttir

  • performance
  • choir
  • Fluteplayer

Ég hef alla tíð haft mikla gleði af tónlist og stundaði tónlistarnám alla mína barnæsku og ungdómsár, lengst af í Tónlistarskólanum á Akureyri. Ég lauk burtfararprófi í þverflautuleik frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og spilaði um árabil með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.
Núorðið spila ég lítið en get engan vegin verið án þess að taka þátt í að flytja fallega tónlist. Og það er ég svo heppin að fá gera með Hymnodiu, dásamlega skemmtilegum kór á Akureyri. Við syngjum tónlist frá víðri veröld, öllum tímum og í ýmsum stílum.

Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Powered by Karolina