Nýsköpunarmaður - Útefandi - Framleiðandi - Eigandi "G. Norðdahl" verkefnanna
Velkomin á vefsvæði mitt hér á Karolinafund! Í stuttu máli hef ég fjölbreytta starfsreynslu sem framkvæmdastjóri og nýsköpunarmaður, verslunarstjóri, sölumaður, rekstrarráðgjafi, verkefnisstjóri, svo dæmi séu nefnd. Ég hef einnig margra ára háskólamenntun á sviði viðskiptafræða og rekstrarfræða, frá Háskóla Íslands og Háskólanum á Bifröst. Get þar af leiðandi samþætt víðtæka menntun og fjölbreytta starfsreynslu. Samþætt reynsla mín og menntun hefur nýst til fjölmargra starfa, til árangurs. Í gegnum tíðina hef ég tekist á við erfið verkefni á sviði nýsköpunnar og endurhögunnar. Undanfarin ár hef ég unnið að nokkrum nýsköpunarverkefnum m.a. útgáfu og einnig hönnun og framleiðslu hjálpartækja fyrir hljóðfæri. Ekki er loku fyrir það skotið að nokkur þessara verkefna rati á fjörur Karolinafund. Fyrsta verkefnið er þegar í undirbúningi. Verið velkomin að hafa samband við mig. Netfangið er gnordahl@internet.is
Bestu kveðjur
Guðmundur Þór Norðdahl