Baldur Ragnarsson

  • Upptökustjóri

Baldur Ragnarsson er tónlistarmaður, upptökustjóri, pródúsent og leikhúsrotta ásamt mörgu öðru. Baldur hefur unnið mikið við leikhús síðustu 12 ár, bæði með minni leikhópum sem og í stóru leikhúsunum. Hann ásamt fleirum stofnaði Leikhópinn Lottu sem hefur ferðast og sýnt barnaleiksýningar utandyra um allt land síðustu 12 sumur. Ásamt því að hafa samið tónlist fyrir sjónvarp og leikhús hefur Baldur spilað með fjölmörgum hljómsveitum síðustu 17 ár. Má þar nefna Ljótu hálfvitana, Innvortis, Morðingjana og Skálmöld. Einnig heldur hann úti hlaðvörpunum Dómsdagur og Besta platan.

Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Powered by Karolina