Helga Hreiðarsdóttir

Helga Hreiðarsdóttir starfar með samtökunum Memmm Play. Hún er leikskólakennari með víðtæka reynslu af leikskólastarfi og viðburðahaldi með börnum og fjölskyldum á Íslandi og í Bandaríkjunum.

Félagasamtökin Memmm Play vinna að því að skapa fjölskylduvænna samfélag á Íslandi.

Memmm Play hefur haldið ýmsa viðburði fyrir fjölskyldur en stendur nú fyrir fjölskyldustundum á tveimur stöðum í Reykjavík. Þar geta foreldrar/forsjáraðilar og börn komið og leikið saman, stækkað tengslanet sitt og fengið fræðslu er varða börn og uppeldi. Í Fjölskyldulandi mun Memmm Play halda fjölskyldustundir með samsöng og samveru sem og halda fjölbreytta og fjölskylduvæna viðburði. 



Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Powered by Karolina