Kaldársel Sumarbúðir KFUM og KFUK

Sumarbúðir KFUM og KFUK í Kaldárseli voru stofnaðar árið 1925 af sr. Friðriki. Síðan þá hefur verið starfrækt uppbyggjandi barnastarf með áherslu á að þátttakendur geti ræktað jafnt líkama, sál og anda.

  • kærleikur
  • trú
  • gleiði

Sumarbúðirnar í Kaldárseli eru í hrauninu ofan við Hafnarfjörð. Þar er fjöldi hella og ævintýralegra staða sem gaman er að skoða og svo er alltaf skemmtilegt að leika sér í hrauninu og busla í ánni.


Fjölbreytt dagskrá er í boði allan daginn, sniðin að aldri og þörf hvers hóps. Að morgni dags er samverustund með fræðslu og söngvum eftir hollan og góðan morgunverð. Dagurinn er svo skipulagður með frjálsum leik, ýmsum tilboðum eins og t.d. smíðasvæði, hópleikir, íþróttakeppnir, kassabílarallí, föndur, listasmiðja. Á þessum tíma er mikið unnið í að virkja athafnaþrá, leikgleði og sköpunarþörf hvers og eins. Eftir hádegismatinn er ævintýraferð þar sem nágrenni Kaldársels er skoðað og farið í hellaferðir, fjallgöngur, ævintýraleiki í skógarrjóðrinu í Kúadal eða í Valabóli og margt fleira. Stundum er nesti með í för og borðað úti í náttúrunni. Á leikjanámskeiðum eru börnin svo sótt kl 17 en í hefðbundnum dvalarflokkum (og á gistinótt leikjanámskeiða) er svo frjáls leikur með ýmsum tilboðum. Eftir kvöldmatinn skemmta foringjar og börn sér saman á kvöldvöku með söng, leikjum, leikritum og miklu stuði. Í lok kvöldvöku er stutt hugvekja og kvöldbænir áður en allir fara í ávaxtastund og svo í háttinn. Þá koma foringjar í herbergin og eru með kvöldlestur eða sögustund fyrir svefninn og koma börnunum í ró.


Í Kaldárseli leggjum við mikla áherslu á persónulega uppbyggingu barnanna, kennslu í félagslegum samskiptum, stuðla að vináttu þeirra á milli og að leyfa þeim að kynnast náttúrunni i leik og lífi. Allt þetta byggjum við á þeim grunni að Jesús elskar okkur eitt og hvert eins og við erum. Við erum fullkomin í hans augum og eigum að bera virðingu fyrir okkur sjálfum, þeim sem í kringum okkur eru og náttúrunni sem Guð skapaði. Þetta er kjarninn í öllu okkar starfi og leik.


Í næsta nágrenni við Kaldársel eru spennandi staðir, svo sem vinin Valaból, eldstöðin Búrfell, móbergsfjallið Helgafell, ýmsir hellar, skóglendi og önnur útivistarsvæði sem gaman er að skoða.

Í Kaldárseli eru stundaðar ýmsar íþróttir eins og fótbolti, körfubolti, frjálsar íþróttir, brennó, skotbolti, fótboltaspil, furðuleikar og margt fleira. Þar eru líka til allskyns sirkus leikföng eins og einhjól, diskar til að snúa, stultur og fleira sem gaman er að prófa.


Skálinn í Kaldárseli er tvískiptur. Í vestari hluta er eldhús, matsalur, salernisaðstaða, tveir svefnsalir, auk tveggja minni herbergja og skrifstofu. Í austari hluta er íþróttasalur, tómstundaherbergi, kvöldvökusalur, svefnsalur, tvö svefnherbergi, salernisaðstaða og geymslur. Elsti hluti skálans er frá 1925 en tvisvar hefur verið byggt við hann.

Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Powered by Karolina